Eva og Ívar komu í óvænta heimsókn í gær með Hafþór. Ég held að það sé óhætt að segja að íbúðin okkar er ein óbarnvænasta íbúð sem um getur a.m.k um þessar mundir vegna framkvæmdanna. Eva hljóp á eftir honum og forðaði öllu því sem hættulegt getur talist eins og hárbeittum hnífum og sög sem var á gólfinu. Þá komst Hafþór inn í eldhús (enda leiftursnöggur) þar sem tóm Vodkaflaska úr gleri var á gólfinu og tókst honum auðvitað að brjóta hana í small og Eva stökk til bjargar. Þá ákváðum við að best væri sennilega að fara út í garð sem við gerðum og þar fékk Hafþór næga útrás í öryggri fjarlægð frá hættulegu íbúðinni okkar. Svo þið sem eigið börn og hugið á heimsókn…. you have been warned.

Þegar við fluttum út ætluðum við að fá okkur hund úti og flytja hann svo með okkur heim en þar sem við höfðum bara efni á herbergi með litlu eldhúsi og klósetti þá voru engar forsendur til þess. Þá ákváðum við að fá okkur bara hund þegar við kæmum heim (þegar við værum búin að safna pening) en svo fóru að renna á okkur tvær grímur þar sem við erum ekki viss um að við séum búin að svala útrásinni alveg 100% Okkur langar að upplifa heiminn betur og því erum við búin að ákveða að bíða í nokkur ár sem er frekar sorglegt því okkur drullulangar svo í hund strax.

Það eru tvær tegundir sem okkur langar í og við erum búin að kynna okkur vel. Annars vegar er það tegundin Rhodesian Ridgeback (Rákhundur) sem ég hef rennt hýru auga til í langan tíma. En hann þarf heilmikla hreyfingu og aga enda stór og stæltur hundur á ferð.



Hins vegar er það tegundin Polish Lowland Sheepdog. Þennan hund sáum við í lest úti og féllum fyrir honum, leituðum í öllum þeim hundabókum sem við komumst í og auðvitað á netinu og kynntum okkur tegundina vel. Þetta er skemmtilegur fjölskylduhundur sem myndi henta okkur mjög vel sérstaklega sem fyrsti hundur. Erum búin að vera í sambandi við ræktendur í Bretlandi sem við höfum kynnst nokkuð vel svo við erum búin að undirbúa jarðveginn.



Svo er annar svona auka sem mig langar líka í en það er Chinese Crested. Mér finnst hann vera svo ljótur að hann er eiginlega bara sætur og mjög sérstakur og spes en Bjarna finnst hann bara vera plain ljótur og tekur ekki í mál að við fáum okkur svona hund. Kannski ég fái mér hann bara samt…Bjarni á eftir að bráðna þegar hann horfir í stóru hvolpaaugun ef ekki þá múta ég honum bara með súkkulaði.