Thu 21 Jul 2005
![]()
Þegar við vorum fyrir vestan tíndum við alveg heilan helling af Blóðbergi til að taka með heim og bjuggum til te úr því. Mjög bragðgott og maður hefur svo sem heyrt að þetta sé svaka hollt en við mundum bara ekki hvað þessi jurt átti návæmlega að gera. Nú er ég búin að vera að kynna mér kosti Blóðbergsins og listinn er endalaus. T.d
• Hjartastyrkjandi
• Sinastyrkjandi
• Vessaþynnandi
• Blóðhreinsandi
• Svitaörvandi (er það gott?)
• Vinnur gegn tíðarteppu
• Vinnur gegn þvagstemmu
• Vinnur gegn harðlífi
• Vinnur gegn hjartveiki
• Vinnur gegn kvefi
• Vinnur gegn hósta
• Vinnur gegn brjóstveiki
• Heilandi áhrif á veiru- og bakteríusýkingar
• Endurnærir frumurnar
• Gott við timburmönnum
• Gott við flogaveiki / niðurfallssýki
• Gott við svefnleysi
• Stöðvar hiksta
• Vindeyðandi
• Styrkjandi
Svo er hægt að nota blóðberg sem krydd á kjöt (t.d lambakjöt) og sumir nota blóðbergið sem ilmjurtir og setja inn í fataskáp ( á víst líka að verja föt fyrir flóm) eða hvar sem er í íbúðinni til að fá góða lykt. Best er þó að tína jurtina á vorin áður en hún byrjar að blómstra, þá er lyktin sterkari – geri það næst. Alltaf gott að borða/drekka eitthvað sem er algjörlega lífrænt, ferskt og án aukaefna. Ætla að tína kræklinga í haust, smakkaði þá einu sinni þegar ég var yngri og fannst þeir ekkert sérstakir en ég ætla að gefa þeim annað tækifæri – örugglega góðir með hvítlaukssósu. Svo er hægt að tína fjallagrös, ber osfrv.
Íslenska fjallkonan er mætt á svæðið.
August 11th, 2005 at 21:44
Niðurfallsýki??
August 11th, 2005 at 21:44
Já finnst þér það ekki skemmtilegt orð? samkvæmt orðabókinni er niðurfallssýki flogaveiki. Var komin með flogaveiki á listann svo ég bæti niðurfallssýkinni bara þar aftan við.
August 11th, 2005 at 21:45
já og blóðbergið er líka rosalega gott við þágufallssýki…
August 11th, 2005 at 21:45
Svo má mylja það niður og reykja það…….. Mikið hlýtur það að vera gott fyrir lungun……
August 11th, 2005 at 21:46
Tek þig á orðinu. Næst þegar þú kemur í heimsókn færðu að reykja dópið…
August 11th, 2005 at 21:47
Svo er thad lika svo FALLEGT!! Svona bleikt og blomstrandi..og ju vel lyktandi, hvad meira getur madur bedid um vid tynslu? Annad en berin sem eru bara svona kulur, hardar og svartar sem vekja oft upp i manni villimanninn. Annad en blessad blodbergid sem bara svifur a vaengjum betri heilsu nidur i fotuna/pokann, tilbuid ad thjona hinu himneska hlutverki sinu.
Ja, mer lyst alltaf betur og betur a stadinn fyrir vestan.
Thad er kannski bara spurning um ad stofna tharna kommunu? Thar sem folk lifir a fegurd og avoxtum natturunnar og eg get lika alveg truad ad haegt se ad breyta kraekiberjum og blaberjum i vin svona eins og vinberjum til drykkju thegar til blots skal haldid.
Skal fyrir thvi!!
August 11th, 2005 at 21:47
já nákvæmlega og ekki má gleyma blessuðu hundasúrunum…