Wed 27 Jul 2005
Í gær skruppum við hjónakornin út og fengum okkur bjór sem er ekki frásögum færandi nema fyrir þær sakir að í fyrsta skiptið á ævinni sá ég yfirlýsta nýnasista. Ég tók fyrst eftir þeim á Dillon þar sem þeir sátu þrír við borð og sötruðu öl - hvað annað en ljósan lager öl því þeim geðjast jú ekki að því sem dekkra er. Við héldum ferð okkar áfram og leiðin lá á “nýjan” stað sem heitir Mið barinn og er á hæðinni fyrir ofan kaffi Vín (sami staðurinn og var áður nema búið að skipta um borðplötur og eigendur). Fljótlega eftir að við settumst niður koma félagarnir inn á staðinn og panta sér aftur ljósan öl. Er viss um að þeir hafa elt okkur frá Dillon þar sem ég gæti hugsanlega litið út fyrir að vera skoðannabróðir þeirra; ljós yfirlitum, rauðbirkinn og snoðaður. Þeir fóru úr leðurjökkunum og komu þá í ljós húðflúraðir upp- og framhandleggir með norrænum rúnum og mynstri. Til að taka allan vafa af því hvort þeir væru nýnastar eður ei þá voru þeir allir snoðaðir og í svörtum stuttermabolum með nasista erninum og hitlerískum tilvitnunum. Þeir töluðu erlent tungumál sem mér heyrðist vera þýska eða eitthvað í ætt við það mál. Ætli þeir hafi komið hingað til lands að skoða hina einu sönnu arísku þjóð?
Nú fer að styttast í sumarfrí. Það hefst um miðjan ágúst á sama tíma og Dagbjört klárar sumarvinnuna og endar þegar skólinn byrjar hjá henni í kringum mánaðarmótin ágúst september. Þetta mun verða kærkomið frí enda mikið búið að vera að gera hjá okkur bæði í vinnu og heima fyrir og vonandi verður framkvæmdum lokið þá svo hægt sé að njóta þess að gera ekki neitt. Þetta er í fyrsta skiptið sem ég fer í alvöru sumarfrí á ævinni, hefur alltaf hist þannig á að ég hef annaðhvort skipt um vinnu eða farið í nám þegar að sumarfríi hefur komið. Annars erum við loksins farin að sjá fyrir endan á þessum framkvæmdum, þeim ætti að ljúka í næstu viku ef allt fer á besta veg.
Í vinnunni upp á Hvíta Húsi var ég að klára stærsta verkefni sem ég hef tekið þátt í, sjónvarpsauglýsing fyrir nýju persónugerðu kortin hjá XY í Íslandsbanka. Vinna við hana byrjaði í febrúar og er að ljúka núna þessa dagana. Minn þáttur í þessari auglýsingu var að teikna og gera hreyfingarnar yfir auglýsinguna. Mjög sáttur við útkomuna. Hægt að sjá hana hérna eða bara sitja límd við skjáinn með stillt á StöðTvö eða SkjáEinn.
August 11th, 2005 at 21:54
ooooohhhh geturðu ekki bara haft real player?? Ég get ekki skoðað neitt af þessu hjá þér!
};-(
August 11th, 2005 at 21:54
http://www.apple.com/quicktime/download
Þarna finnur þú ókeypis Quicktime spilara - alveg vonlaust að vera ekki með allar tegundir
August 11th, 2005 at 21:55
Nýnasistarnir hafa kannski bara verið að ræða hvernig er hægt að komast með strætó á Nings.
August 11th, 2005 at 21:56
Ég hefði kannski átt að rétta hjálparhönd og benda þeim á nýtt leiðarkerfi svo þeir kæmust nú örugglega leiðar sinnar…
August 11th, 2005 at 21:56
Já. En þar sem þú ert svo vígalegur sjálfur þá hafa þeir eflaust ekki þorað að spyrja til vegar.