Fljótlega eftir að við féllum fyrir íbúðinni okkar og keyptum hana fórum við að líta betur í kringum okkur, á garðinn og hverfið. Laugarneshverfið og Teigarnir er alveg frábært hverfi til að búa í allt mjög rólegt og þægilegt - ekkert stress.

Helsti gallinn við að búa hérna er að þetta hverfi er staðsett einhvernvegin eins langt frá allri þjónustu í allar áttir og hægt er. Eiginlega mitt á milli þriggja stórra þjónustusvæða: Holtagarðar, Kringlan og miðbærinn. Það er auðvitað sjarmerandi að hafa svona litlar verslanir og þjónustuaðila eins og litla hverfisbúð, fisksala, spegla- og glersala, skóviðgerðarmann, apótek og videoleigu á horninu. En það kemur ekki í staðinn fyrir Bónus og Vínbúðina enda er töluvert mikið dýrara að versla í 10-11 og þessum minni búðum. Það væri nú t.d. líka hægt að flytja Bónus í Skútuvogi hingað í hverfið enda er hún kjánalega nálægt Bónus í Holtagörðum, bara rétt við sinnhvorn endan á Skútuvogi. Og núna þegar nýtt leiðarkerfi strætó er komið í gagnið þurfa bílaleysingjar að labba þrisvar yfir stórar umferðargötur frá nýju stoppistöðinni við Sæbraut - áður stoppaði vagninn beint fyrir utan Holtagarða.

En það sem helst er að hverfinu er að það vantar hverfispöbbinn. Það er jú Amokka sem er kaffihús í Borgartúni en það er samt bara kaffihús og bara opið til 22:00 á virkum dögum og svo 19:00 um helgar sem er ekki mjög hentugt. Maður á jú að geta labbað inn á hverfispöbbinn sinn þegar mann langar til þess ekki þurfa að líta á klukkuna til að fullvissa sig um að enn sé opið. Þannig að ef okkur langar í kaldann kranabjór þá þurfum við gjörusvovel að labba niður í miðbæ eða taka strætisvagn jafnvel þótt mann langi kannski bara í einn. Ég trúi nú ekki öðru en að það sé markaður fyrir hverfispöbb hérna og skil ekki af hverju engum hefur dottið það í hug ennþá. Manni finnst það eiginlega vera sjálfsögð mannréttindi sem ættu að vera rituð í mannréttindasáttmála Evrópu að allir eigi að hafa aðgang að hverfispöbb.

Það er kannski smá von nú þegar Borgartúnið og nærliggjandi svæði eru í endurskipulagningu um að þeir skjóti niður eins og nokkrum pöbbum, Vínbúð og einni stórri Bónusverslun takk fyrir.


Ef þér finnst eldsneytisverð of hátt þá getur þú kvittað hérna.