Tue 23 Aug 2005

Jón Gnarr hefur alltaf verið í miklu uppáhaldi hjá mér enda maðurinn með eindæmum fyndinn. Hann hefur ávallt haft skemmtilega kaldhæðinn húmor og eru Fóstbræður og Tvíhöfði góð dæmi um það.
Undanfarið ár eða svo hefur kallinn tekið upp á því að skrifa „Bakþanka” á baksíðu Fréttablaðsins. Eins og flestir kannast við eru þessa greinar oft trúarlegs eðlis þar sem Jón predikar yfir okkur um siferði með Biblíuna við höndina. Í greinunum má bæði finna strangtrúaðar skoðanir og einnig hugljúfa texta um manngildi sem eru allt af því að vera væmnir og alls ekki í anda Jóns. Þegar ég las þetta fyrst fannst mér þetta fyndið enda auðséð að þetta væri grín en svo héldu greinarnar áfram….og áfram alveg þangað til að ég var farin að efast um að þetta væri grín.
Var hann kannski búinn að frelsast eða jafnvel þroskast eins og hann segir sjálfur? eru þessar greinar skrifaðar af innilegri einlægni eða er þetta allt einn stór brandari? Rakst svo á skemmtilegar pælingar um þetta efni og ég held að ég sé komin á þá skoðun núna eftir mikla umhugsun að þetta sé djókur. Heimasíðan hans var það sem sannfærði mig að lokum enda varla mikil alvara á bak við það að setja á svið atriði úr Biblíunni með Barbie og Action mönnum oft nöktum í misvísandi stellingum. Heimasíðuna má sjá hér.
Erum búin að bæta inn myndum af Isle of Wight tónlistarhátíðinni sem við fórum á síðasta sumar.
August 23rd, 2005 at 22:43
Ja eg er einmitt buin ad velta Gnarrinum lengi fyrir mer, hve mikil einlaegni vs hve mikid grin thetta vaeri.
Annars bara stutt til ad segja ad mikid hef eg nu skemmt mer yfir myndunum, gaman ad sja enska sveitabaei og hvernig lifid er fyrir utan London og tonlistarhatidina ad ogleymdri menningarhatidinni.
Ja eitt i vidbot, i sambandi vid ‘tropical’ teid. Ef thetta er daemid med svona alls konar avaxtabutum i faridi bara varlega i ad tyggja tha, mamma braut tonn a thvi…en thid erud kannski ekkert ad tyggja thetta mikid…
Alla vega, godar stundir og goda helgi,
H
August 24th, 2005 at 2:43
Jú það passar að þetta eru ávaxtabitar og lauf en okkur hefur nú ekki dottið í hug að japla á þessu.. en nú langar mig að prófa - en held ég haldi aftur af mér til að bjarga tannheilsunni.