Wed 24 Aug 2005
Íslenska er ótrúlega ríkt og skemmtilegt tungumál. Ég og Hulda skoðuðum stundum orðabókina mína áður en við fórum á djammið og fundum mörg skemmtileg íslensk orð sem við notuðum ósapart á landann og enginn virtist skilja. Það er synd hvað við notum takmarkaðan orðaforða þar sem til eru svo óteljandi skemmtileg íslensk orð. Nú höfum við sett inn viðbót í dálkinn hér til hliðar sem nefnist "Orðið íslenskt." Þar birtast íslensk orð og merking þeirra af handahófi úr gagnagrunni sem við höfum sett upp og eiga fleiri eftir að bæstast við í framtíðinni. Ef einhver vill senda okkur skemmtilegt íslenskt orð til birtingar er honum velkomið að senda okkur það.
August 25th, 2005 at 0:53
Ja…haha…mikid glissudum vid nu ad theim karnadinum
August 25th, 2005 at 1:11
Heldur betur nóti góður…