Thu 25 Aug 2005
Nú er förinni heitið á Berserkseyri í berjamó á morgun og komum heim á sunnudag. Þurfum að tína (já tína því við ætlum okkur ekki að týna neinu) 10 kíló af berjum í það minnsta fyrir berjavínið sem við ætlum að brugga. Dóra kemur með okkur og samkvæmt spákonunni sem hún fór til í kvöld á þetta eftir að verða heljarinnar mikið partý!! Við og rollurnar - það getur varla klikkað?

Á Channel 4 í Englandi var sýndur einn besti sjónvarpsþáttur sem við höfum séð en hann heitir Garth Marenghi´s Dark Place Hospital - mjög fyndnir og súrir þættir. Gert er grín af ódýrri bandarískri sápu- og spennuþáttagerð. Hér er hægt að sjá einn þátt í Windows Media skráarsniði.
August 25th, 2005 at 22:22
Dark Place Hospital, alger snilld..’nuff said.
August 29th, 2005 at 14:38
Við erum alltaf að bíða eftir að þetta komi út á DVD - höfum reynt að fylgjast með hvort og hvenær en án árangurs.
August 30th, 2005 at 16:34
Var í sjónvarpinu hérna í Bretlandi, ITV1 eða BBC, man ekki, kannski þar sem þið sáuð þetta fyrst ,)
Var að kíkja á Amazon.co.uk, ef eitthvað er komið út finnst það oftast nær þar, alas, því miður ekki neitt enn.
Annars er bara að vona að þetta komi út sem fyrst, góða lukku þar
Snilldarpersónur og myndatökunni oft beitt skemmtilega til að ná fram þeim áhrifum sem sókst er eftir. Og endalaust hvað hægt er að hlægja að “dubbing” tilraununum, sem eru vísvitandi illa gerðar.
August 30th, 2005 at 16:52
Þetta var á Channel4.
Já þetta er sko með því betra sem komið hefur í sjónvarp lengi og skrýtið að þetta skuli ekki fara beint á DVD. Myndi eflaust gera það gott þar.
Hér er afrit af vefspjalli Garth Marenghi’s og Dean Learners við áhangendur sína. Sehr gut