August 2005
Færslur eftir mánuðum
Tue 16 Aug 2005

Á síðasta húsfundi bentu nágrannar okkar á hversu kjörið hitastig er inni í þurrkherberginu (sem er sameign) til bruggunar. Ennfremur sögðu þau að ef við hefðum áhuga ættum við endilega að nota þessa aðstöðu. Við urðum svolítið heit fyrir þessu og ákváðum að slá til. Nú erum við að sanka að okkur flöskum og öðru. Þetta verður gaman. Við gerum okkur þó grein fyrir því að það er ekki sama hvernig þetta er gert svo við ætlum að leita ráða hjá þeim sem reynsluna hafa. Ef einhver lumar á góðum ráðum þá myndum við gjarnan þiggja þau. Svo er stefnan tekin á berjamó á Berserkseyri á næstunni sem er alveg tilvalið því þá getum við meðal annars bruggað berjavín. Það getur varlað klikkað.
Tue 16 Aug 2005
Höfundur: Dagbjört
Fært undir:
Almennt ,
Myndir[4] athugasemdir
Jæja síðasti dagurinn í vinnunni í dag. Tvær vikur í afslöppun og skemmtun framundan - það verður fínt. Vorum kvaddar í dag (vorum tvær að hætta í dag) með rosa fínum kökum keyptar úr Björnsbakarí. Skrýtið að vera hættur en ég get a.m.k mælt með Listasafni Íslands sem mjög góðum vinnustað - allir starfsmennirnir frábærir.
Erum annars búin að vera að bæta við myndum í "myndakindina" og setja texta við margar myndanna bæði gamlar og nýjar. Bætum örugglega við fleiri myndum á næstu dögum.
Sat 13 Aug 2005
Höfundur: Dagbjört
Fært undir:
Skemmtilegt[5] athugasemdir

Fórum út í garð í góða veðrinu í gær og spiluð krokket. Maður hefur varla spilað þetta síðan maður var lítill en þetta er mjög skemmtilegt. Bjuggum til okkar eigin reglur þar sem við höfðum ekkert kynnt okkur reglurnar sem er bara í góðu lagi. En er núna búin að kíkja á þetta á netinu og rakst á ágæta síðu um þessa skemmtilegu íþrótt. Sérstaklega finnst mér skemmtilegt “poison” afbrigðið sem sagt er frá á síðunni. Það gengur út á það að sá fyrsti sem klárar brautina og hittir endastaurinn verður svokallað “poison” sem á góðri íslensku útleggst sem “eitur.” Þá á sá hinn sami að reyna að reyna að hitta kúlur hinna og ef það tekst verða þeir úr leik. En þetta er samt ekki svo auðvelt því eitrið má ekki hitta járnin sem kúlurnar fara í gegn og má heldur ekki fara í gegnum þau því þá verður hann sjálfur úr leik. Ef annar leikmaður nær að klára brautina og hitta endastaurinn áður en eitrið nær að hitta kúlu hans verður hann að eitri og tekur við því hlutverki. Þetta setur aðeins meiri spennu í krokketið sem er auðvitað skemmtilegra. Erum að spá í að halda krokket-samkundu á næstunni í garðinum hjá okkur meðan veðrið er enn svona gott og eru allir að sjálfsögðu velkomnir. Mæli sterklega með þessari skemmtilegu íþrótt.
Ef þið hafið áhuga þá fæst krokketsett í Rúmfatalagernum á aðeins 990 kr.
Góð grein eftir Egil Helga um Baugsmálið svokallaða.
Fri 12 Aug 2005
Höfundur: Dagbjört
Fært undir:
Skemmtilegt[8] athugasemdir
Eftir heilmikið grúsk í íslensku orðabókinni fann ég þetta snilldarorð "kjaftakind" sem þýðir kjöftug manneskja og féll Bjarni samstundis fyrir því. Reyndar fannst mér kjaftaglenna líka mjög flott en kjaftakindin varð fyrir valinu af kómískum ástæðum.
Bloggforritið sem við notumst við á þessari síðu heitir WordPress og er algerlega gjaldfrjálst forrit sem hver sem er getur nálgast og breytt eftir sínu höfði, bæði hvað varðar útlit og uppsetningu. Þetta forrit býður upp á ýmsa skemmtilega kosti og viðbætur sem hægt er að bæta við eftir eigin höfði án þess að greiða fyrir það - þurfum aðeins að borga 6 dollara á mánuði fyrir hýsinguna og fengum við lénið í kaupbæti. Þó við séum búin að leggja töluverða vinnu í uppsetningu og útliti síðustu daga þá er síðan ennþá í þróun og margt sem við eigum eftir að bæta við á næstum dögum og vikum.
Fri 12 Aug 2005
Höfundur: bjadddni
Fært undir:
Almennt ,
Skemmtilegt[4] athugasemdir
Í morgun var ég að ganga í vinnuna eins og hverju virkum degi - alveg sömu leið og vaninn leiðir mig. Bara alveg eins og venjulega þangað til að ég kom inn í Hátúnið. Þar verður nánast samferða mér maður á miðjum aldri frekar illa til hafður. Minnti á Reynir Pétur en ekki alveg eins mjór, en illa rakaður, grettinn, með gleraugu og með nánast of gula derhúfu. Hann segir upphátt “rosalega er þessi gangstétt sprungin”, sem fylgt var eftir með “þetta gengur ekki”.
Ég vil taka það fram að mér finnst fátt óþægilegra en þegar ókunnugir hefja við mig samtal en þegar það hefur gerst hef ég oft hugsað að næst skuli ég nú bara sleppa höftunum og eiga ánægjulegt samtal um daginn og veginn við algerlega ókunnuga manneskju. Nú var komið að því.
Ég svaraði fullyrðingum mannsins játandi. Hann hélt svo áfram og fór að tala um þegar hann datt af hesti, lennti í rauðamöl og það “snerist upp á allt saman”. Hann stokkbólgnaði allur og hafði aldrei náð sér almennilega, þurfti meira að segja að láta skera í þetta og nú gat hann sko ekki dansað - ekki boðið dömum upp í dans. Bara setið á rassinum við barinn. Í mesta lagi gæti hann vangað en alls ekki dansað almennilega. Þetta endurtók hann nokkurnvegin tvisvar á leið okkar í gegnum Hátúnið með djúpum og gáfulegum tilsvörum frá mér á borð við: “Já”, “nei”, “einmitt” og “það er ekki nógu gott”.
Þegar að Nóatúni var komið þurfti ég að fara í aðra átt og kvaddi ég hann. Hann kvaddi mig ekki á móti – gekk bara áfram beinustu leið og hélt áfram að tala. Það var þá sem ég áttaði mig á því að hann var ekkert að tala við mig – bara að tala við sjálfan sig eins og hann gerir alltaf.
Thu 11 Aug 2005
Höfundur: Dagbjört
Fært undir:
Almennt ,
Skemmtilegt[4] athugasemdir
Eitt kvöld þegar ég og Bjarni vorum á pöbb í London fór ég á klósettið og sá ég þar bráðsniðuga auglýsingu. Fyrirsögnin var "ScooterMAN" og gengur út á það að fólk geti farið á bílnum sínum niðrí bæ, á pöbba, partý eða bara hvert sem er og drukkið. Svo þegar heim skal haldið er hringt í ScooterMAN og hann kemur á vespu og sækir þig, fellur hana saman, setur hana í tösku og skellir henni í skottið á bílnum þínum. Svo keyrir hann þig heim á bílnum þínum (ekkert vesen að sækja hann daginn eftir) og þegar þú ert búinn að borga honum brunar hann í burtu á vespunni. Þetta finnst mér ótrúlega sniðugt, miklu ódýrara en leigubíll þar sem viðhaldskostnaðurinn er minni og þú þarft bara að borga fyrir að láta keyra þig aðra leiðina. Gæti jafnvel komið í veg fyrir að fólk keyri ölvað þar sem það fær bílinn með heim. Þetta vil ég fá á Ísland þegar við erum búin að fá okkur bíl takk fyrir.
Hér getið þið skoðað heimasíðu ScooterMAN í Englandi.
Wed 10 Aug 2005
Höfundur: bjadddni
Fært undir:
Almennt ,
Kvart[8] athugasemdir
Ég fékk of stóran skammt af strætó núna á laugardaginn síðastliðinn. Ætlaði að framkvæma þann verknað að fara í Vínbúðina í Austurstræti sem við kjöraðstæður er mjög einfalt: geng rakleiðis út úr íbúðinni á Laugarnesvegi og nákvæmlega níutíu metra í norðaustur á stoppistöðina okkar og gríp þar vagn númer tólf. Hann fer með mig rakleiðis á Lækjargötu tvöhundruðogtíu metra frá Vínbúðinni. Ekkert vandamál…. eða hvað?
Jú þegar ég ætlaði að grípa leið tólf heim á leið svo ég og Dagbjört gætum farið og tekið þátt í Gaypride partýinu, sem átti að byrja eftir rúma klukkustund, þá kom heldur betur babb í bátinn. Hann kom ekki strax og reiknaði ég þá með því að ég hafi rétt misst af honum og þurfti því að bíða í hálfa klukkustund eftir næsta. Það var nú allt í lagi enda gott veður og verið að hljóðprufa fyrir hátíðarhöld dagsins með Scooter í fullu blasti, og ég eeeeeeeelska Scooter (varúð kaldhæðni). Fjörtíu mínútur liðu og alls konar númeraðir vagnar komu og fóru en engin með happatölunni tólf, nema einn á leið í öfuga átt í vesturbæinn. Jæja ég gat þó allavega huggað mig við það að þessi fer sína leið og kemur svo til baka og tekur mig upp í eftir ekki svo langan tíma. Svo var beðið í þrjátíu mínútur til viðbótar og engin vagn númer tólf nema aftur í vitlausa átt og nú var ég farin að verða örlítið pirraður. Ég ákvað að spyrja vagnstjóra næsta vagni hvort hann vissi eitthvað um ferðir tólfunnar. Hann var aldeilis ekki á þeim buxunum og spurði á móti í derrings tón veifandi út höndunum: “hvað á ég að vita um tólfuna, ég hef ekki hugmynd um tólfuna”. Með þessum orðum hélt hann sína leið. Næsti vagnstjóri var ekki eins “hjálpsamur” og sá fyrri heldur sagði hann mér bara kurteisislega að hann vissi ekki um tólfuna en spurði svo hvað ég væri búinn að bíða lengi. Hann varð mjög hissa þegar ég sagði honum að ég væri búinn að bíða í sjötíu mínútur.
Þarna ákvað ég að ekki væri hægt að bíða lengur og tók þennan vagn upp á Hlemm til að spyrjast fyrir þar sem “þjónustuver” Strætó svarar aðeins síma á virkum dögum – fólk tekur jú aðeins strætó á virkum dögum ekki satt?!
Á Hlemmtorgi arkaði ég inn og spurði unga stúlku í afgreiðslu strætó hvort hún vissi eitthvað um tólfuna – þegar þarna var við sögu komið var þetta orðið að tilgangi mínum í lífinu: að komast að því hvað verður um alla vagna númer tólf sem fara í vesturbæinn. Lenda þeir í sjálfsmorðsárásum, biluðu þeir allir eða leynist þar mini útgáfa af Bermúda þríhyrningnum. Eitthvað var að og ég bara varð að komast að því. Hún hringdi einhver símtöl og eftir tíu mínútna bið komst hún svo að því að “einhver vegur var lokaður í vesturbænum” og út af því gengu þeir ekki tilbaka “en þeir byrja að ganga fljótlega aftur”. Ha? Fóru þeir þá ekki bara einhvern annan veg sem var opinn og aftur inn á leið til að þjónustu þá sem taka strætó? Nei þeir hættu bara að ganga til austurs en gengu samt áfram til vesturs. Þeim datt ekki sinni í hug að setja upp einhverskonar merkingar á aðalstoppistöðvunum eða láta aðra vagnstjóra vita því eflaust hafa margir spurt þá.
Þegar ég loks komst heim eftir rúma tveggja tíma svaðilför (nota bene ekki með vagni númer tólf) og við löngu búin að missa af Gay Pride þá sagði ég við Dagbjörtu: “við erum að fara að kaupa okkur bíl á morgun takk fyrir.” Því miður höfum við ekki efni á að standa við það fyrr en næsta vor.
Mon 8 Aug 2005
Höfundur: Dagbjört
Fært undir:
Almennt ,
Skemmtilegt1 athugasemd
Sun 7 Aug 2005
Á föstudaginn buðum við nokkrum vinum og kunningjum í grillpartý. Grilluðum við spjót sem við bárum fram ásamt meðlæti út í garði. Á grillinu voru
grísabollur með beikonvafningi með ostrusósu, fiskispjót penslað með olíu og steinselju og etið með hvítlaukssósu,
kryddlegin kjúklingaspjót með ananas og banönum og svo hvítlauks og matjurta kryddjurtlegna kartöflubáta. Ekki má svo gleyma
kartöflusalatinu, sveppum fylltum með smurgráðaosti og grilluðum rækjum. Mæli sérstaklega með kjúklingaspjótunum enda einstaklega góður kryddlögur sem kjúklingurinn er marineraður í. Það kemur sér sérstaklega vel að rækta eigin matjurtir í stofuglugganum þegar á að halda grilll. Veðrið var gott og miðað við hvernig það var dagana fyrir og eftir föstudaginn þá vorum við heppin því ekki hefði verið hægt að hafa þetta úti hina dagana. Ekki er sama stemmning í því að borða grillmat inni. Þetta var mjög gaman og skemmtilegt fólk úr ólíkum áttum sem náði vel saman þannig að stefnan er tekin á að hafa þetta á hverju sumri.
Í gær fórum við svo í brúðkaupspartý til Evu og Ívars. Var eitthvað af áfengum mjöð rennt niður og þar af leiðandi ekkert af viti gert í dag nema að sitja upp í sófa, horfa á sjónvarpið og háma í sig flatböku frá Hróa Hetti. Gott að slappa af eftir erfiða helgi.
Tue 2 Aug 2005
Höfundur: Dagbjört
Fært undir:
Almennt ,
Matar Æði[15] athugasemdir
Ég var að fá frábærar fréttir um daginn. Hulda var að segja mér það að hún, Terry og Brynjólfur komi heim til Íslands ALFARIÐ í desember!!!
Terry féllst sem sagt á að koma heim fyrr og taka síðasta árið í HÍ. Þetta er alveg frábært. Ég er búin að vera alveg í sjöunda himni undanfarna daga, gott að fá drusluna sína heim.
–
Erum búin að vera að fikta okkur áfram með flatbökudeig alveg síðan við vorum úti. Við erum alltaf að reyna að gera allan mat eins hollan og mögulegt er. Við erum búin að gera óteljandi tilraunir með spelt og heilhveiti í botninn en allt kemur fyrir ekki þetta verður bara bragðvont. Heilhveitibrauð og speltbrauð er gott en ekki heilhveiti- eða speltbotn. Því erum við bara búin að sætta okkur við það að til að gera góðan flatbökubotn þarf hvítt hveiti til.
Fann reyndar mjög góða uppskrift að flatbökubotni á vef BBC (að sjálfsögðu með hvítu hveiti) eftir vinsælan breskan kokk að nafni Antony Worral Thompson, mjög góður botn enda heitir uppskriftin “Perfect pizza dough.”
Í gær fengum við okkur eldbakaða flatböku. Aðferðin sem við notuðum var að grilla hana á gasgrillinu okkar og ég verð að segja það að þetta er langbesta flatbakan sem við höfum nokkurn tímann smakkað. Alveg í sama gæðaflokki og á veitingastöðum Botninn er settur á grillið í rúmar 3 mín. og honum þá snúið við og sósan og áleggið sett á. Erum búin að finna uppskrift að alveg æðislegri sósu og svo munar öllu að við erum að rækta kryddjurtir sjálf og getum því notað ferskt oregano og basil sem munar öllu. Ef þið hafið ekki prófað að grilla flatböku þá verðið þið að prófa það ef þið hafið aðgang að góðu grilli – sjúklega gott. Við eigum a.m.k ekki eftir að nota ofninn framar við flatbökugerð því sú matseld kemst ekki í hálfkvisti við grillið.
« Previous Page — Next Page »