Ég rakst á grein í Fréttablaðinu um daginn þar sem fjallað var um blaðið Cosmopolitan sem var að fagna 40 ára starfsafmæli sínu. Þar er því haldið á lofti að stefna blaðsins hafi ekkert breyst í gegnum árin. Orðrétt segir í greininni að “Cosmopolitan sagði konum að vera óhræddar við að lifa lífinu og skilaboðin voru skýr – “Þú þarft ekki mann til að hjálpa þér að fá það sem þú vilt úr lífinu. Þú getur gert þetta sjálf.”"

Með greininni fylgir mynd af tveimur forsíðum blaðsins. Þar eru forsíðumyndir af kynþokkafullum stúlkum í flegnum hlírabolum og ýmsar fyrirsagnir eins og: “cellulite cure, sexy for less, make him feel like MR. BIG, never-fail foreplay moves,” Ritstjóri blaðsins segir þó “…stefna Cosmopolitan hefur alltaf verið sú sama, að hjálpa konum að finna aukið öryggi og vera sjálfstæðar. En hvað er að því að vera líka falleg, kynæsandi og kunna á karlmenn

Stefnan er skýr - að efla sjálfstraust og öryggi kvenna og senda þau skilaboð að þær geti fengið það sem þær vilja úr lífinu án karlmanns. En samkvæmt innihaldi blaðsins virðist sem þær þurfi einmitt mann til þess því annars væri blaðið varla uppfullt af ráðum til að gleðja karlmenn á svo endalusan máta og lítið fjallað um aðra hluti nema kannski hvernig þú eigir að missa 5 kg á viku og losna við appelsínuhúðina.

Þeim finnst sennilega ekki hljóma eins vel að segja stefnu blaðsins snúast um það að kenna konum að vera fallegar, kynæsandi og kunna á karlmenn…