Tue 20 Sep 2005
Ursus - the suprise from Iceland?
Höfundur: bjadddniFært undir: Drykkjarföng , Útlönd , Skemmtilegt , Myndir

Í mastersnáminu út í Englandi voru með mér í bekk 5 grikkir. Held ég ennþá einhverju sambandi við nokkur þeirra og í einu af tölvupóstskeyti frá þeim tilkynntu þau mér með miklu stolti að þau drykkju sko íslenskan Ursus vodka þegar þau færu á djammið.
Ég kom algerlega af fjöllum enda aldrei séð eða heyrt um íslenskan Ursus vodka. Eftir smá Google leit þá kom þó í ljós að téður Ursus vodki er framleiddur í Hollandi eftir íslenskri uppskrift sem þetta framleiðslufyrirtækið keypti til sín. Semsagt upprunin á Íslandi, framleiddur í Hollandi og drukkin í Grikklandi. Svo til að loka hringnum þá fengu Grikkirnir Íslendinga til að búa til sjónvarpsauglýsingu fyrir drykkinn rauða.
Hér er slóð á sjónvarpsauglýsingarnar á vef Ursus.
Samkvæmt SagaFilm (framleiðendi auglýsinganna) þá var lagt út með að gera íslenskar auglýsingar með grískri stemmningu. Dæmi hver fyrir sig hvort það hafi lukkast.
Hér eru svo fjórar prentauglýsingar.

Allar klisjur um Ísland eru dregnar upp í markaðssetningu Ursus, meira að segja með Ísbirni merkimiða flöskunnar. Vantar bara björklega eskimóa í snjóhúsum að semja tónlist á hvalspik og selshúðir. En þrátt fyrir það (kannski vegna þess?) er hinn „alíslenski“ Ursus vodki sá vinsælasti í Grikklandi enda varla annað hægt með svona slagorð: „Ursus – the surprise from Iceland“.
Talandi um áfengi þá gengur krækiberjavínið hægt og rólega, framleiðslan stefnir ekki í að verða tilbúin fyrir jól sökum hægrar gerjunar (hún er ekki einu sinni hálfnuð). En það er búið að fleyta drykknum á annan kút og skilja þannig vínið frá berjahratinu. Nú er bara að bíða og bíða og bíða eftir að gerjunin klárast svo hægt sé að skella þessu á flöskur.
September 20th, 2005 at 12:36
Er hægt að fá þetta hér á landi???
September 20th, 2005 at 12:51
Samkvæmt því sem ég kemst næst þá fæst þetta ekki hérna - ég þori samt ekki að fullyrða það.