uppvask

Lítill tími hefur gefist til að sinna ástkæru kjaftakindinni okkar því Dagbjört hefur verið á haus í skólanum og ég á haus í vinnunni ásamt því að sinna hugðarefni okkar sem er bjór og má ekki vanrækja (Hvað með þetta orð „vanrækja“? Van - rækja, hvað er það og hvað þýðir það?). Það er svo mikið að gera hjá okkur að uppvaskið fær ekki einu sinni athygli frá okkur og safnast það upp í hauga í eldhúsið þangað til að ekkert er hægt að gera nema að vaska upp. Síðastliðna daga höfum t.d. ekki haft nein hrein glös til að drekka úr og brá ég á það ráð að fara með heilan bala af óhreinum glösum heim til mömmu og pabba en heimili þeirra býr einmitt yfir vél sem þvær óhreina tauið fyrir mann, mjög sniðugt. Erum að velta fyrir okkur að fjárfesta í svona tækni, þetta er jú framtíðin og gott ef ekki bara nútíðin.