Fórum í Þjóðmenningarhúsið í dag. Ástæðan var fyrst og fremst sú að ég þarf að gagnrýna texta og upplýsingar einhverrar sýningar í verkefni fyrir safnafræði. Þetta var góð afsökun til að drífa sig og kíkja þangað þar sem ég hef ekki komið þangað áður. Skoðuðum við fjórar sýningar sem þarna voru. Þar var meðal annars líkanið af tónlistarhúsinu og ráðstefnumiðstöð Reykjavíkur sem byggja á við höfnina svo og myndskeið, teikningar, veggspjöld og alls kyns kynningarefni um hönnunina. Þetta á eftir að vera mjög flott, mjög grand. Hér má sjá frétt á mbl.is þar sem vísað er í bæði myndir og myndskeið af tónlistarhúsinu.

tónlistarhús

Bílnum var lagt við Laugarveginn og þangað skunduðum við eftir heimsóknina í Þjóðmenningarhúsið. Komum við að mikilli þvögu sem gekk mjög hægt niður Laugarveginn og sáum við nokkra ljósmyndara og menn með kvikmyndatökuvélar taka myndir inn í þvöguna. Gerðum við því fastlega ráð fyrir því að um væri að ræða einhvern frægan en þegar betur var að gáð var um að ræða Gísla Martein, Ólaf F. Magnússon, Stefán Jón Hafstein og fleiri. Þeir voru með sérstök gleraugu fyrir augunum sem byrgðu þeim sýn og blindrastaf. Gengu þeir löturhægt baðandi sig í sviðsljósinu. Án efa eiga þeir eftir að lýsa upplifun sinni í kvöldfréttunum.