Sat 22 Oct 2005
Við fórum ekki í kvöld að horfa á Idolið á Classic Rock enda enginn tími til slíks. Ég var að vinna í hópverkefni í skjalastjórn frá því í morgun og vorum við Klara ekki búnar fyrr en hálftíu í kvöld…og erum ekki næstum því búnar. Þetta verkefni gildir 30% og þurfum að skila því á þriðjudaginn og svo er ég að fara í próf sama dag (aðferðafræði II) sem gildir 15% svo þetta verður skemmtileg helgi. Bjarni var líka lengi að vinna en við skelltum okkur eftir duglegheitin á kaffi Vín og fengum okkur nokkra öllara sem var sehr fínt.

Annars er það nýjasta að vinnuherbergið okkar er loksins orðið að vinnuherbergi. Við höfum aldrei getað unnið þar inni áður. Þetta var bara þetta dæmigerða skipulag…skrifborð við vegginn og við höfum bara aldrei getað einbeitt okkur þar – líður bara eins og í skammakróknum þar sem maður situr alveg þétt upp við vegginn, á móti honum með fullt af plássi á bak við okkur. Svo datt mér það í hug að það væri sniðugt að hafa svipað fyrirkomulag og í hópvinnuherbergjunum sem eru í Bókhlöðu. Þar er stórt rúnað borð í miðju herberginu og brugðum við því á það ráð að kaupa plötu sem er 120 x 220 cm, undir hana keyptum við tvo búkka. Þetta er allt annað líf, Bjarni er líka alsæll með þetta… fullt af plássi og þægilegt andrúmsloft. Þetta er allt annað líf, bara vonandi að ofninn fari að taka við sér því enn sem komið er þarf að klæða sig vel þar inni þar sem enn er ekki kominn botn í ofnamálin - en það er í vinnslu.
October 22nd, 2005 at 9:51
Bara að opna sig með ofnamálin. Ég er boðinn og búinn að hjálpa með það. Það þýðir ekki að láta sér vera kalt ef að á að raða í starfrófsröð…………
October 22nd, 2005 at 11:33
Já stóra ofnamálið fer nú að komast á það stig að það þarf að vísa því til sérfræðings. Samkvæmt föðurlegum ráðum þá erum við búin að prufa allt sem við getum gert sem er þetta (raðað í tímaröð eftir kúnstarinnar reglum):
Opna kranana og smyrja olíu til að losa um.
Opna loftgat til þess að athuga hvort þar leynist eitthvað loft, kom bara vatn.
Hækka þrýstinginn á heitavatninu inn í hitakompu.
Ekkert af þessu hefur alveg verið að gera sig þótt að sumir ofnar hafi aðeins batnað höldum við. Það gæti þó bara verið ímyndun eða góða veðrið undanfarið sem hefur blekkt.
Það væri þá kannski hægt að plata þig til að líta við þegar þú hefur færi á?
October 24th, 2005 at 21:45
Þetta er fínasta skriftstofa, til hamingju með hana!
Minnir pínkupons á Náttúrufræðiskriftstofurnar með veggjakortin og blöð og hefti útum allt