Nú er hugmyndin “einstaklingur að láni” komin til Íslands. Fjallað er stuttlega um þetta á Vísi og kalla þeir þetta “lifandi bókasafn” sem sett var upp í Smáralindinni um helgina. Sá blindi var að sögn vinsælastur en boðið var upp á ýmsa "titla" eins og múslima, Japana, líkskoðara og rauðsokku.