Fór fyrir nokkrum vikum í heimsókn í Náttúrufræðistofnun Íslands. Kom mér mjög á óvart hversu léleg aðstaðan er. Þeir eru búnir að vera með sömu sýninguna síðan u.þ.b. árið 1989. Það hefur nákvæmlega ekkert breyst síðan ég fór þangað sem nemandi í grunnskóla. Þeir eru til dæmis ekki með stakt orð í ensku í sýningartextanum þrátt fyrir að erlendir ferðamenn séu stór hluti sýningargesta. Jú þeir eru með einhver heiti á latínu en ekki söguna meir sem er mjög sjaldgæft á íslenskum söfnum.

Náttúrufræðistofnun er eitt af höfuðsöfnunum, hin eru Þjóðminjasafn Íslands og Listasafn Íslands. Sýningin ber þess greinilega merki að ástandið sé bágborið. Þetta er sorglegt sérstaklega þegar tekið er tillit til þess hversu merkilega gripi og sagnfræðilegar upplýsingar þeir hafa að geyma. Á Íslandi er að finna fjölbreytt dýra- og plöntulíf að ég tali nú ekki um jarðsjálftavirknina, eldgosin og allt hitt sem hægt væri að gera mun ítarlegri skil. Til dæmis er þar að finna brot úr tunglsteini sem víða í þessum heimi er gætt með ítarlegri öryggisgæslu en ekki hér….ó nei, brotið hangir bara þarna á veggnum án þess að fólk veiti því sérstaka eftirtekt.

geiri

Eitt skýrasta merki þessarar bágbornu aðstöðu er geirfuglinn okkar. Hann er þarna til sýnis í glerbúri þar sem hvorki er raka- né hitastýring sem er forsenda varðveislu þessar dýrgripar. Því má með sanni segja að hann sé að grotna niður og enginn gerir neitt! Auðvitað væri réttast að hann yrði tekinn niður og settur í viðeigandi varðveislu þangað til viðeigandi húsakostur og aðstæður bjóðast. Nýir ráðherrar lofa ávallt hinu fögru en einhverveginn verður aldrei neitt úr þvi.

Leiða má líkur að því að þetta sé yfirlýsing þeirra sem þarna vinna að sýna fram á hversu slæmt ástand þessarar stofnunar er. Geirfuglinn er kannski holdgervingur þeirrar hrörnunar sem stofnunin virðist ganga í gegn um. En varla er það þess virði að fórna þessari merku og mjög svo sjaldgæfu þjóðargersemi. Sterkari yfirlýsing væri að taka hann niður og hafa búrið tómt þar sem engar forsendur eru til að varðveita hann í þessari aðstæðu.