Svona í loks ársins er alveg tilvalið að rifja upp árið eins og almennilegum fréttavef sæmir. Það er líklega alveg óhætt að gera það núna þar sem ólíklegt er að eitthvað markvert gerist úr þessu. Kannski erum við að gleyma einhverju en þetta er það helsta sem við munum.
Innflutningsveisla fyrir ættingjana

Við lágum yfir matreiðslubókum í marga daga til að ákveða hvað við ættum að bjóða upp á í þessu 15 manna boði og alltaf vorum við hrædd um að vera með of lítið. Við stóðum kófsveitt allan daginn og elduðum auðvitað alltof mikið. En þetta heppnaðist vonum framar og sérstaklega klakaskálin úr ís sem sló í gegn.
Berserkseyri

Við skruppum í nokkrar stuttar ferðir á Snæfellsnes, nánar tiltekið Berserskeyri sem er ættaróðal Dagbjartar. Fyrsta ferðin var um hávetur og er alveg jafn fallegt um að litast á þeim árstíma og öðrum þrátt fyrir að það dagsbirtan sé af skornum skammti.
Þórður fermdist

Þórður bróðir Dagbjartar fermdist og haldin var svaka veisla heima hjá honum. Nú styttist í bílprófið og börnin. Myndavélin gleymdist því miður við þetta tilefni og er því myndin hér að ofan af veraldarvefnum.
Listasafn Íslands

Dagbjört fékk sumarvinnu á Listasafni Íslands þar sem hún vann í þrjá mánuði við að skrá sýningarskrár og boðskort inn í gagnagrunn safnsins. Var þetta góð tilbreyting þar sem vinnutíminn var frá 8-4, engin helgarvinna og staðsetningin góð (við tjörnina).
Endurbætur á baðherbergi

Kvöld eitt í byrjun sumarsins var ákveðið að opnuð skyldi hurð út í garð sem falin var bakið viðarklæðninguna á baðherbergisveggjunum. Þá var ekki aftur snúið og átti þessi litli snjóbolti eftir að stækka hratt því með því að opna út þurfti að rífa helmingin af viðarklæðningunni sem kallaði á að sparsla og mála veggina, færa vaskinn (og kaupa nýjan fallegri) sem kallaði á að henda út baðkarinu og kaupa nýtt upphengt salerni, sem kallaði á að rífa flísarnar og færa lagnirnar, sem kallaði á að slétta og flota gólfið. En við náðum að stoppa áður en út í óefni var komið. Nú bíður það betri tíma að kaupa fleiri skápa og flísaleggja.
Kjaftakind varð til

Annað sumarkvöld var ákveðið að hefja ritun vefdagbókar, bloggs. Á blog.central.is varð Káfið til. Það lifði ekki lengi sökum þess hve lítið var hægt að stjórna og ráða útliti síðunnar, ekki hjálpuðu til óumbeðnar blikkandi auglýsingar. Var þá ráðist í að kaupa eigið lén til að hýsa vefdagbók kjaftakindarinnar.
20 km ganga

Eftir að hafa fjárfest í gönguskóm á góðu verði í Útilífi var ákveðið að reyna nota þá. Haldið var á Berserkseyri þar sem þeir voru prófaðir. Við vorum búin að spyrjast fyrir um eina leið í kringum fjallgarðinn og var okkur sagt að þetta væri 2ja – 3ja tíma ganga. Við lögðum af stað full tilhlökkunar að kanna ný lönd. Sex klukkustundum og 20 kílómetrum síðar lukum við hringnum og komum aftur að Berserkseyri mjög þreytt en ákaflega sátt við það sem fyrir augu bar á leiðinni en þar var meðal annars á að líta fallega fossa, dali, kletta, hraun, fjöru, hlaupandi kindur, prjónandi hesta, læki, sjóinn, fjöll og firnindi.
Heimsóknir frá USA

Ættingjar Dagbjartar sem búa í Bandaríkjunum komu nokkrum sinnum í heimsókn til Íslands í ár. Meðal annars hélt Lína föðursystir upp á fimmtugsafmælið sitt hjá afa og ömmu Dagbjartar. Á myndinni eru Dúddi og Heiða, frændsystkini Dagbjartar, þegar við fórum með þeim á Andarungann og fengum okkur öl.
Grillpartý

Við héldum innflutningsgrillpartý fyrir vini og kunningja úti í garðinum heima. Við grilluðum spjót og meðlæti ásamt ýmsum öðrum kræsingum. Maturinn fór vel í mannskapinn og allir skemmtu sér vel. Ætlum að reyna að hafa þetta árlegt héðan í frá - jafnvel reyna að hafa grillveislu fyrir ættingjana líka.
Giftingarpartý hjá Evu og Ívari

Eva og Ívar buðu til samkvæmis snemma í ágúst í tilefni af giftingu þeirra í júní. Þemað var bleikt og blátt og „klæddumst “ við bleikum og bláum gleraugum. Þar var boðið upp á gotteríisskot, Thor bjór og bollu. Hárkollur af ýmsum stærðum, gerðum og litum litu dagsins ljós og var ljóst fólk skemmti sér vel.
Berjamó

Síðsumars var keyrt vestur með Dóru til að fara í berjamó á Berserskeyri yfir eina helgi. Var ætlunin að tína ber og nota í tilraunabruggun á krækiberjavíni. Markmiðum ferðarinnar var náð og gott betur en það.
Gifting Heiðrúna og Andy

Heiðrún og Andy giftu sig Vestfjörðum í október. Við keyrðum þangað ásamt Kristínu mömmu Dagbjartar og nutum náttúrufegurðar, góðs félagsskapar og veitinga í veislunni og samkvæminu. Heiðrún og Andy eiga von á sínu fyrsta barni núna í janúar. Takk fyrir góða skemmtun og enn og aftur til hamingju!
Heimkoma

Hulda, Terry og Brynjólfur fluttust loksins búferlum frá hlýjum sandströndum Ástralíu yfir hálfan hnöttinn til litla kalda en æðislega klakans. Við erum auðvitað hæstánægð að hafa endurheimt þau úr klóm „hvalavinanna“.
Stórt barn

Hafdís systir Bjarna og Siggi eignuðust risastórt barn í byrjun nóvember sem var heilar 18 merkur og 56 sentimetrar. Myndina til vinstri tók afi hans á fæðingardeildinni. Hin myndin er af honum með vinkonu sinni sem fæddist nokkrum dögum á eftir honum.
Bíll

Eignuðumst loksins bíl. Keyptum fjölskyldujálkinn af foreldrum Bjarna, fagurgrænn VolksWagen Golf árgerð 1998. Nú erum við loksins frjáls.
Bruggið

Krækiberjavínið komst loksins á flöskur í desember eftir LANGAN fæðingartíma, búið að gerjast í 4 mánuði. En þetta hafðist og ber varan nafnið Ber-serkur þar sem krækiberin voru týnd á Berserkseyri. Nú þurfa flöskurnar að liggja á hliðinni í 3 mánuði áður en það verður formlega tilbúið. Stefnt er að því að endurtaka bruggið að ári liðnu en þá reynslunni ríkari og jafnvel prófa að brugga bláberjavín, ávaxtavín og fleira sem heillar.

Keyptum okkur miða á Tarantino 30. des. Ég kann vel að meta myndirnar hans og var spennt að vita hvaða myndir hann hefði upp á að bjóða. Svo sá ég á mbl.is hvaða myndir það voru… Þrjár kung-fu myndir frá 1978-79!!
Ég bjóst nú alveg við einni slíkri en ekki að allar þrjár væru af þessum toga. Ég var alveg staðráðin í því að miðarnir yrðu seldir og ekki söguna meir. En svo fór ég að hugsa og komst að þeirri niðurstöðu að maður verður að gefa öllu tækifæri, aldrei að vita nema að þessar myndir séu góðar. Þegar ég hugsa um svona myndir sé ég fyrir mér gaur sem stekkur ofan af byggingu og lendir fyrir framan hundruðir ninja-gaura og segir: “þú drepa pabba minn ég hefna, ég hafa lært hjá meistara Jakob” svo snýr hann þá alla niður eins og hans er von og vísa.
En eins og ég segi þá á að gefa öllu tækifæri. Kill Bill myndirnar voru góðar þrátt fyrir óraunveruleg bardagaatriði svo ég segi bara “Game on.”
Jólin komin og farin og skeggið líka. Það bókstaflega fauk af eins og sjá má á þessari hreyfimynd sem ég gerði.
Það er búið að vera mikið að gera undanfarið og lítill tími gefist til að skrifa hér. Kláraði prófin á laugardag, skilaði lokahópverkefni á sunnudag og er þar með komin í jólafrí sem verður að viðurkennast að er mjög góð tilfinning. Þessi önn hefur verið sérstaklega erfið og annasöm þar sem ég tók svo margar einingar en alveg þess virði ef mér tekst að útskrifast fyrr fyrir vikið. Ég tek einhverjar vaktir á Sóltúni sem losna en annars verður þetta bara endurnærandi og ljúft jólafrí.
Jólaundirbúningurinn hefur setið á hakanum hjá okkur vegna skóla og vinnu. Við héldum að það yrði ekkert mál að kaupa jólagjafirnar, við myndum bara rölta um og finna eitthvað sniðugt handa fólki. Það var nú öðru nær, þetta er frumskógur þarna úti! Við höfum því endurhugsað hernaðaráætlunina og reynum að ákveða hvað við ætlum að kaupa áður en við hættum okkur í búðir á þessu árstíma. Sem betur fer gefum við bara fjölskyldu okkar jólagjafir þetta árið. Það munar um allt, sérstaklega þar sem við erum svo sein með allt og því gott að minnka álagið og spara pening í leiðinni. Við vorum rétt að klára að skrifa jólakortin í gærkveldi og þar sem við erum svo sein getum við ekki sent nein jólakort til útlanda.
Staðan núna er sem sagt sú að við eigum eftir að kaupa nokkrar jólagjafir, kaupa jólaskraut þar sem við skildum okkar eftir í Englandi, skreyta, baka og taka til í allri íbúðinni…iss það er ekki neitt.
Við vorum loksins að eignast bíl.

Þetta er þýskur eðalvagn sem ber nafnið Volkswagen Golf og var smíðaður undir lok síðustu aldar. Hann er ekki keyrður „nema“ rétt rúmlega 200.000 kílómetra sem jafngildir því að hafa farið hringinn í kringum okkar litla Ísland 151 sinnum. Semsagt bíll með reynslu. Við erum að kaupa hann af foreldrum mínum sem keyptu hann nýjan og er hann því sannkallaður fjölskyldubíll sem búið að er að halda vel við.
Við vorum að spá í að kaupa nýlegri bíl í vor en það hefði þýtt mánaðarlegar afborganir og hærri tryggingar sem er ekkert gaman. Ætlum að láta þennan duga okkur í allavega tvö ár kannski lengur ef hann verður þægur.
Myndin hér fyrir ofan er ekki af bílnum okkar, græni liturinn er örlítið öðruvísi og svo er hann ekki á álfelgum eins og þessi bíll sýnir. Set inn mynd um leið og veður leyfir.

Laugardaginn 4. febrúar á komandi ári opnar sýning mín „Ostranenie - tónræna sjónræna“ á Thorvaldsen bar Austurstræti 8. Það eru ekki nema tæpir tveir mánuðir þangað til og að nægu er að huga, útbúa boðslista á opnunina, hanna og prenta boðskort og kynningarefni, skrifa textann í sýningarskránna, búa til myndirnar og láta prenta þær, strekkja þær á blindramma, senda boðskort, setja upp sýninguna osfrv. Flestir lesendur þessarar síðu fá auðvitað sent boðskort á opnunina en hún verður samt opin öllum og eru allir velkomnir.
Er kominn með nokkrar myndir en þarf að gera fleiri til að hafa úr einhverju að velja - hérna er hægt að skoða þær myndir sem komnar eru.
Myndirnar verða auðvitað allar til sölu á sýningunni.

Mér var send skemmtileg getraun sem Virgin útgáfufélagið stendur fyrir og felst í því að koma auga á nöfn sjötíuogfjögurra þekktra hljómsveita á einni og sömu myndinni. Galdurinn er að ekkert letur er notað heldur eru nöfnin „leikin“ eða þeim uppstillt.
Einkar skemmtileg hugarleikfimi í að setja saman nafn og mynd.
Getraunin er hérna.

Mínir fyrrum félagar í hljómsveitinni Úlrik voru að spila í Reykjavík um helgina - nánar tiltekið á Café Amsterdam en þar spiluðum við mjög oft áður en ég hætti hljómsveitarbröltinu alfarið fyrir 3–4 árum síðan. Ekki nóg með það heldur var það þarna sem við Dagbjört hittumst fyrst á Úlrik balli fyrir næstum því 6 árum síðan þannig að þessi staður er samofin sögu okkar. Af þessu tilefni ákváðum við að hverfa aftur til fortíðar og skella okkur á Amsterdam á laugardaginn og rifja upp gömlu góðu stemmninguna ásamt Evu, Ívari, Huldu og Terry en þau síðarnefndu voru svo gott sem að nýlent á Íslandi eftir útlegð í Ástralíu í nokkur ár. Þau eru loksins flutt aftur „heim“. Áður en á Amster var haldið vorum við með upphitunarpartí heima á Laugarnesveginum sem var hin besta skemmtun.

Það var líka kominn tími á mig að taka nokkur lög með drengjunum ef ég mundi eitthvað af þeim - það var bara eins og ég hafi aldrei hætt þótt ég hafi ekki mikið snert á gítarnum síðan ég hætti, hvað þá spilað þessi lög. Þetta var mjög gaman og næstum því eins og í gamla daga - góð og nauðsynleg upplyfting eftir erfiða vinnu- og skólatörn síðustu mánaða sem er reyndar ekki búin því Dagbjört er að byrja í prófum þessa dagana. Kúrsinn sem ég er að kenna upp í Listaháskóla lýkur á föstudaginn þá tekur við undirbúningur fyrir þann næsta sem byrjar 9. janúar.
Við erum alltaf að kvarta yfir vægum refsingum hér á Íslandi en eru öfgarnar í hina áttina eitthvað betri?
Ástralinn Nguyen Tuong Van var hengdur í Singapore fyrir að vera með 400 grömm af heróíni á sér en hann var gripinn á flugvelli þar í landi.
Sjá frétt á BBC hér.