Mon 5 Dec 2005

Mínir fyrrum félagar í hljómsveitinni Úlrik voru að spila í Reykjavík um helgina - nánar tiltekið á Café Amsterdam en þar spiluðum við mjög oft áður en ég hætti hljómsveitarbröltinu alfarið fyrir 3–4 árum síðan. Ekki nóg með það heldur var það þarna sem við Dagbjört hittumst fyrst á Úlrik balli fyrir næstum því 6 árum síðan þannig að þessi staður er samofin sögu okkar. Af þessu tilefni ákváðum við að hverfa aftur til fortíðar og skella okkur á Amsterdam á laugardaginn og rifja upp gömlu góðu stemmninguna ásamt Evu, Ívari, Huldu og Terry en þau síðarnefndu voru svo gott sem að nýlent á Íslandi eftir útlegð í Ástralíu í nokkur ár. Þau eru loksins flutt aftur „heim“. Áður en á Amster var haldið vorum við með upphitunarpartí heima á Laugarnesveginum sem var hin besta skemmtun.

Það var líka kominn tími á mig að taka nokkur lög með drengjunum ef ég mundi eitthvað af þeim - það var bara eins og ég hafi aldrei hætt þótt ég hafi ekki mikið snert á gítarnum síðan ég hætti, hvað þá spilað þessi lög. Þetta var mjög gaman og næstum því eins og í gamla daga - góð og nauðsynleg upplyfting eftir erfiða vinnu- og skólatörn síðustu mánaða sem er reyndar ekki búin því Dagbjört er að byrja í prófum þessa dagana. Kúrsinn sem ég er að kenna upp í Listaháskóla lýkur á föstudaginn þá tekur við undirbúningur fyrir þann næsta sem byrjar 9. janúar.
December 5th, 2005 at 13:16
Ahhh, ég minnist þess að hafa eitt sinn verið blindfullur, undir lögaldri, að krádsörfa á pakkinu á Amsterdam við undirleik ykkar í Úlrik.. Síðan braut ég glas og gömul kona fitlaði við Frikka sem var hálfdauður í gluggakistunni..
Minningar!
December 5th, 2005 at 16:07
Takk fyrir góðar minningar Bjarni
og takk fyrir gott kvöld
alveg til í að gera þetta oftar.. en þið þurfið að hægja á ykkur í drykkjunni ef ég á að vera samferða ….!!!
December 5th, 2005 at 19:14
sko gamla . . engu gleymt . . og fíbblin tvö sömu fíbblin og fyrir fjórum árum og verða að eilífu . . ég hefði verið til í að vera á staðnum.
December 6th, 2005 at 10:27
Já allar þessar minningar frá Amsterdam - verst að ég man ekki eftir þeim nema að litlum hluta.
En ekki er gott að dvelja á fortíðinni - framtíðin er málið.
December 6th, 2005 at 10:33
Oooo, missti ég síðan af öllu þessu?? Það var ekkert verið að segja manni frá því í gær hmmmmmmm….
December 6th, 2005 at 11:09
Já leiðinlegir þessir samskiptaörðugleikar. En nú hef ég lært það af biturri reynslu að láta textaskilaboð ekki duga.
Næst sendi ég ykkur einnig póstkort, bréf, tölvupóst, símskeyti, hugskeyti, tunglskeyti, flöskuskeyti og jah…. kannski hringi ég bara líka.
December 6th, 2005 at 16:48
Og ef það dugar ekki þá eigum við bara ekkert skilið að vera með ykkur!
December 12th, 2005 at 14:04
Neineinei…fyrsta myndin af fagurri asjonu (i anda Rudolfs med rauda nefid..og andlitid) minni a thessu fraega bloggi!!
Ju thetta var svaka stud og eg held bara ad thynnka arsins hafi fylgt i kjolfarid en thad var sko thess virdi. Lika gaman ad spranga um i svona flottri ibud, ekkert sma mikil breyting fra thvi ad eg sa hana fyrst.
Skal fyrir thvi!
December 13th, 2005 at 23:56
Þú tókst þig bara vel út í íbúðinni…við bjóðum sko ekki hverjum sem er inn fyrir, sérstaklega ekki ef það skemmir heildarútlit íbúðarinnar.
En jú það var svo sannarlega glatt á hjalla og því þarf að endurtaka þetta hið bráðasta…a.m.k. á gamlárskvöld ef ekki fyrr.
December 14th, 2005 at 1:02
Já ég tek undir þynnku ársins - og gott betur en það þynnka fyrri hluta þessa áratugar í það minnsta. Ég hafði ekki einu sinni lyst á hinni hefðbundnu þynnkuflatböku og faðmaði meira að segja postulínið í eitt skipti.