Tue 20 Dec 2005
Það er búið að vera mikið að gera undanfarið og lítill tími gefist til að skrifa hér. Kláraði prófin á laugardag, skilaði lokahópverkefni á sunnudag og er þar með komin í jólafrí sem verður að viðurkennast að er mjög góð tilfinning. Þessi önn hefur verið sérstaklega erfið og annasöm þar sem ég tók svo margar einingar en alveg þess virði ef mér tekst að útskrifast fyrr fyrir vikið. Ég tek einhverjar vaktir á Sóltúni sem losna en annars verður þetta bara endurnærandi og ljúft jólafrí.
Jólaundirbúningurinn hefur setið á hakanum hjá okkur vegna skóla og vinnu. Við héldum að það yrði ekkert mál að kaupa jólagjafirnar, við myndum bara rölta um og finna eitthvað sniðugt handa fólki. Það var nú öðru nær, þetta er frumskógur þarna úti! Við höfum því endurhugsað hernaðaráætlunina og reynum að ákveða hvað við ætlum að kaupa áður en við hættum okkur í búðir á þessu árstíma. Sem betur fer gefum við bara fjölskyldu okkar jólagjafir þetta árið. Það munar um allt, sérstaklega þar sem við erum svo sein með allt og því gott að minnka álagið og spara pening í leiðinni. Við vorum rétt að klára að skrifa jólakortin í gærkveldi og þar sem við erum svo sein getum við ekki sent nein jólakort til útlanda.
Staðan núna er sem sagt sú að við eigum eftir að kaupa nokkrar jólagjafir, kaupa jólaskraut þar sem við skildum okkar eftir í Englandi, skreyta, baka og taka til í allri íbúðinni…iss það er ekki neitt.
December 20th, 2005 at 13:51
Úfff púfff, láttu mig þekkja þetta! Það gengur allt furðulega hægt hérna hjá okkur líka - værum alveg til í að fresta jólunum um svona eina viku, en það er víst ekki hægt…
Annars finnst mér nú allt í lagi þó að jólakortin skili sér einhvern tímann milli jóla og nýárs, jafnvel á nýja árinu - ef ég gerði það ekki, þá kæmu ALDREI jólakort frá okkur! ;Þ
December 21st, 2005 at 0:15
Kannast við þetta , hef ekkert geta gert útaf prófum, er alveg að kafna núna útaf því að ég á eftir að gera allt….
Er þó búin með kortin, ákvað að vera aðeins sniðug með það;)
December 22nd, 2005 at 7:35
Iss þið farið létt með þetta. Þið getið samt gert eins og ég, keypt allar jólagjafirnar í október áður en próf byrja
það er svakalega þægilegt, það eru oft útsölur á þessum tíma, enginn í búðunum og fullt af úrvali á þessum tíma, ég mun sko gera þetta á hverju ári. En mér finnst samt helst til snemmt að þrífa, baka og skreyta í október þótt við Bjarni séum nú alin upp við það, að vísu er yfirleitt byrjað að hugsa um jólin á okkar bernskuheimili í ágúst, en öllu er ofaukið
December 22nd, 2005 at 19:55
já ég held að málið sé að vera vel tímanlega með gjafirnar á næsta ári, ekki spurning.
Fjóla.. þetta er auðvitað alveg rétt hjá þér. Betra er seint en aldrei svo við ætlum bara að senda jólakortin út þótt seint sé.
December 24th, 2005 at 14:55
Gleðileg jól
December 24th, 2005 at 15:06
Gleðileg jól sömuleiðis.