Fri 20 Jan 2006

Vorum svo heppin að fá gefins þessa fínu uppþvottavél en fyrrum heimili hennar var kaffistofa málaradeildar BYKO. Sá öðlingur sem gaf okkur hana er Gummi eiginmaður Ástu Völu sem er systir Helgu sem er kona Tryggva sem er faðir minn….
Já hver segir að fjölskylduboð séu tilgangslaus? Við erum mjög þakklát þar sem okkur er búið að dreyma um slíka maskínu alveg síðan við byrjuðum að búa saman. Uppvask er bara plain leiðinlegt.
Fengum hana afhenta fyrir um það bil tveimur vikum og stendur hún enn á sama stað í eldhúsinu þar sem við höfum ekki enn fundið tíma til að græja hana og rífa skápa til að koma henni fyrir. Erum of upptekin við uppvaskið til að koma henni fyrir.
Annars vorum við að fjárfesta í öðru tæki en það ku vera iPod sem keyptur var notaður af Hö og fengum við hann á kostnaðarverði. Okkur hefur lengi langað í slíkan grip og er mikil kátína hér á bæ.
Tæknin er yndisleg.
January 21st, 2006 at 14:02
Þá skil ég útafhverju þið voruð loksins að bjóða mér í mat
Ekkert uppvask, ljúft. Vildi að það væri hægt að koma svona maskínu fyrir heima hjá mér, leiðinlegasta verkið sem ég man eftir.
January 21st, 2006 at 21:24
Það er ekki enn búið að koma henni fyrir og tengja þannig að þú verður bara að vaska upp eftir þig og færð ekkert að fara fyrr en því er lokið
January 21st, 2006 at 22:40
Svo lengi sem ég fæ eitthvað gott að borða, þá er það ok mín vegna
Líka ágætt, er komin aftur í æfingu núna þar sem ég er komin heim, mamma og pabbi eru með uppþvottavél heima á Hólmavík.