Sýningin mín Ostranenie - sjónræna tónræna verður opnuð laugardaginn 4. febrúar (eftir 1.5 viku) milli klukkan 17.00 og 19.00, ykkur er því óhætt að taka frá þennan eftirmiðdag.

Ostranenie

Boðskort verða send út í byrjun næstu viku með nánari upplýsingum.

Undirbúningur gengur vel og fara boðskort og sýningarskrá í prent í dag og allar myndir eru tilbúnar til prentunar. Ég ætla að sýna fjórar nýjar myndir, ein er eldri mynd en uppfærð og svo er ein „gömul“. Alls sex myndir sem eru allar á bilinu 150 til 200 cm á breidd og 80 til 95 cm á hæð.

Vonumst til að sjá sem flesta.