February 2006
Færslur eftir mánuðum
Mon 27 Feb 2006
Höfundur: bjadddni
Fært undir:
Skemmtilegt[3] athugasemdir
Það lítur ekki vel út með Júróvisjónför okkar til Athenu í maí.
Miðasala hófst í morgun klukkan 09.00 og var ég í allan morgun og alveg fram að lokum vinnudags að reyna að komast inn á gríska miðasöluvefinn. Hann hrundi vegna álags og smátt og smátt seldust upp þeir miðar sem settir voru á sölu í dag án þess að við gætum nælt okkur í einn einasta. Við erum þó ekki alveg búin að gefast upp því það verða seldir einhverjir miðar áfram á næstunni.
Sat 25 Feb 2006
Höfundur: bjadddni
Fært undir:
Kvart[6] athugasemdir
Fórum að sjá Naglann eftir Jón Gnarr í kvöld og það eru tveir klukkutímar sem við myndum gjarnan vilja fá aftur. Þetta var vægast sagt slappt, klisjukenndir brandarar um staðalímyndir karla og kvenna án þess að nokkur broddur væri í þessu. Sýningin er kynnt sem „ Broslegur harmleikur um karlmennskuna eftir Jón Gnarr“ en þetta var alls ekki broslegt að okkar mati og því bara harmleikur frá upphafi til enda. En það voru þó svona þriðjungur fólksins í salnum sem virtist hafa smekk fyrir þessu og hlóu dátt, sumir svo mikið að þeir þurftu í sífellu að þurrka gleðitárin sem streymdu niður kinnarnar. Par sem sat fyrir framan okkur og hló mest af öllum virtist alveg gangast við öllum þessum viðbjóðslegu klisjum og voru í sífellu að gefa hvort öðru „five“ skellihlægjandi.
Sá sem lék aðalhlutverkið, Gunnar nokkur Sigurðsson, sýndi að hann getur hvorki leikið né farið með gamanmál. Meðleikari hans Jón Stefán Kristjánsson var hinsvegar mjög góður í allra kvikinda líki hvort sem það var kona, karl, barn eða gamalmenni. Hann bjargaði því sem hægt var að bjarga.
Það verður að segjast að það kemur dáldið mikið á óvart að Jón Gnarr skuli skrifa svona þreyttan farsa um viðfangsefni sem búið er að gera margsinnis og þónokkuð betur en þetta eins og t.d. Hellisbúinn sem var örugglega fyrir næstum því 10 árum síðan.
Ætli Jón sé búinn að glata þessum skemmtilega ferska húmor sem alltaf einkenndi hans verk?
Thu 23 Feb 2006
Höfundur: bjadddni
Fært undir:
Skemmtilegt1 athugasemd

Er þessa dagana að kenna kúrs upp í Listaháskóla sem kallast viðsnúningur og byggist á kenningum um Détournement. Hugtakið gengur í stuttu máli út á að tvær ólíkar hugmyndir mynda saman nýja hugmynd og nýja merkingu alveg sama hversu óskildar upprunalegu hugmyndirnar eru. Þessi aðferð hefur mikið verið notuð í áróðri og myndlist en er einnig góð og gild í engum sjáanlegum tilgangi eins og sjá má í þessum tilbúna He-man þætti.
Mon 20 Feb 2006
Höfundur: Dagbjört
Fært undir:
Útlönd ,
Skemmtilegt[9] athugasemdir
Silvía beib stóð sig með prýði á laugardaginn, hún var töff og kúl.
Annars er gaman að fylgjast með erlendu Eurovision síðunum, sérstaklega Esctoday en þar tjáir fólk sig um keppnina og margir eiga ekki til orð yfir framlagi okkar.
Silvían okkar er a.m.k að vekja mikla athygli því athugasemdir við greinar um hana eru langflestar. Íslendingar á síðunni reyna allt sem þeir geta til að verja hana og útskýra ádeiluna. Annars kemur berlega í ljós að fólk annað hvort elskar hana eða hatar.
Hún þyrfti eiginlega að fá aukafjármagn einhversstaðar frá til að ferðast um Evrópu til að kynna sig og lagið svo fólk átti sig betur á þessari vitleysu allri, það yrði a.m.k. mjög skemmtilegt sjónvarpsefni.

Annars vorum við að ákveða það að skella okkur til Aþenu á Eurovision 2006! Ef það er einhverntímann gaman að fara út til að upplifa Eurovision þá er það svo sannarlega núna. Miðasalan byrjar reyndar ekki fyrr en í lok febrúar svo við bíðum spennt.
Eins verður gaman að koma til Aþenu. Án efa mikið stuð og mikið gaman. Það væri auðvitað gaman ef fleiri vildu koma með svo ef einhverjir vilja skella sér með í ævintýrið þá endilega að láta oss vita. Það er vonandi að sem flestir Íslendingar fari út til að styðja Silvíu Nótt og láti vel í sér heyra. Það er ekki oft sem maður hefur afsökun til að láta eins og fífl.
Sun 19 Feb 2006
Höfundur: bjadddni
Fært undir:
SkemmtilegtEngar athugasemdir

Eins og komið hefur fram í einhverjum fjölmiðlum síðustu daga eru þeir ótrúlega líkir Stefán Hilmarsson og Snorri Snorrason úr Idolinu. Það hvarflaði að manni að hann Stebbi ætti kannski óskilgetinn son en það er frekar ólíklegt þar sem Stefán hefði þá verið 11 ára gamall við getnaðinn. Kannski eru þeir launbræður?

Wed 15 Feb 2006
Höfundur: bjadddni
Fært undir:
Skemmtilegt[2] athugasemdir

Í tilefni af úrstlitakvöldi söngvakeppni sjónvarpsins á laugardagskvöld ætlum við að hafa smá teiti.
Þeir sem ætla að mæta vinsamlegast látið annaðhvort okkar vita.
Wed 15 Feb 2006
Höfundur: bjadddni
Fært undir:
Kvart[5] athugasemdir

Á föstudaginn fyrir rúmri viku þá datt út sjónvarpið hjá okkur og eftir smá tilraunir komust við að því að við fengum ekkert merki inn í íbúðina. Við töluðum þá við nágranna okkar á hæðinni fyrir ofan og þar var það sama upp á teningnum. Þar sem við erum tengd í gegnum Breiðband Símans þá var ekkert annað að gera en að hringja í „þjónustu“-verið og athuga hvort það væri bilun í hverfinu eða götunni.
„Þú ert númer tólf í röðinni“ var mér svarað með vélrænni röddu. Eftir nokkuð langa bið kom röðin að mér en áður en ég gat útskýrt fyrir stúlkunni hvernig bilunin lýsti sér var hún búin að segja mér að þetta væri alveg örugglega innanhús vandamál, að loftnetssnúra hefði örugglega bilað hjá okkur. Ég spurði hana undrandi hvernig það gæti verið, þar sem þetta var ekki bara ein íbúð þá benti allt til þess að þetta væri bilun í götunni eða hverfinu. Hún sagði að það hefðu ekki neinar kvartanir borist svo það gæti ekki verið bilun hjá þeim. En hún vildi nú samt hjálpa mér og tók niður númerið og sagðist ætla að hringja í mælingadeildina, þeir gætu mælt þetta og séð hvort það væri einhver bilun í gangi, bara svona til að vera alveg viss. Ég fékk símtal nokkrum mínútum síðar og þar sem mér var tjáð að mælingadeildin segði að allt væri í himnalagi en benti mér á að skipta um loftnetssnúru.
Tveimur sjónvarpslausum dögum síðar fréttum við hjá nágrönnum okkar að það væri bilun í götunni og verið væri að vinna að viðgerð. Þremur sjónvarpslausum dögum síðar hringdi ég aftur í „þjónustuver“ Símans og aftur fékk ég að vita að ég væri aftur númer tólf í röðinni. Þegar loksins kom að mér var mér sagt að verið væri að vinna að biluninni en ekkert hægt að segja um hvenær henni yrði lokið. Rúmum fimm sjónvarpslausum dögum síðar fengum við aftur sjónvarp.
Ætli starfsfólk þjónustuvers Símans sé þjálfað til að segja að það bilunin sé hjá fólkinu sjálfu alveg sama hversu ósennilegt það kann að vera?
Tue 14 Feb 2006
Höfundur: Dagbjört
Fært undir:
Kvart[2] athugasemdir
Mótmæli í dag gegn Google sjá hér.

Sun 12 Feb 2006
Höfundur: Dagbjört
Fært undir:
Kvart1 athugasemd
Ég þarf sennilega að endurskoða stillingarnar á Skæpinu eitthvað. Ég hélt að fyrirkomulagið á skype væri svipað og á adium/msn en raunin er víst önnur. Ég hafði stillingarnar þannig á Skype að allir gætu haft samband við mig, bæði með skilaboðum og hringingum, séð myndina af mér og upplýsingar um mig (profælið mitt). Það gerði ég til að kunningjar og vinir gætu flett mér upp og haft samband ef þeir vildu.
Í gær og í dag hef ég svo verið að fá hringingar og skilaboð frá aðilum frá hinu ýmsu heimshornum. Sýnist ég þurfa að breyta þessum stillingum eitthvað ef þetta heldur áfram svona. Sé til, enn sem komið er hefur þetta bara verið fyndið.

Sat 11 Feb 2006
Höfundur: Dagbjört
Fært undir:
Skemmtilegt[9] athugasemdir
Við erum loksins orðnir Skæpverjar þannig að þið sem eruð ekki komin með Skype endilega að hala því niður hér. Fínt að geta talað ókeypis og sparar án efa nokkra skildinga, sérstaklega þegar hringt er út í heim.

Prófuðum þetta áðan og komust að því að það þarf ekki heyrnartól með hljóðnema ef Skype er notað í fartölvu, a.m.k. í Machintosh. Við vorum næstum því búin að kaupa slík heyrnartól í dag en gott að við biðum með það. Skype nöfnin okkar eru dagbjort79 og bjadddnihel svo endilega bæta okkur á listann.
Muna svo að kjósa Silvíu í kvöld…
— Next Page »