breiðband símans

Á föstudaginn fyrir rúmri viku þá datt út sjónvarpið hjá okkur og eftir smá tilraunir komust við að því að við fengum ekkert merki inn í íbúðina. Við töluðum þá við nágranna okkar á hæðinni fyrir ofan og þar var það sama upp á teningnum. Þar sem við erum tengd í gegnum Breiðband Símans þá var ekkert annað að gera en að hringja í „þjónustu“-verið og athuga hvort það væri bilun í hverfinu eða götunni.

„Þú ert númer tólf í röðinni“ var mér svarað með vélrænni röddu. Eftir nokkuð langa bið kom röðin að mér en áður en ég gat útskýrt fyrir stúlkunni hvernig bilunin lýsti sér var hún búin að segja mér að þetta væri alveg örugglega innanhús vandamál, að loftnetssnúra hefði örugglega bilað hjá okkur. Ég spurði hana undrandi hvernig það gæti verið, þar sem þetta var ekki bara ein íbúð þá benti allt til þess að þetta væri bilun í götunni eða hverfinu. Hún sagði að það hefðu ekki neinar kvartanir borist svo það gæti ekki verið bilun hjá þeim. En hún vildi nú samt hjálpa mér og tók niður númerið og sagðist ætla að hringja í mælingadeildina, þeir gætu mælt þetta og séð hvort það væri einhver bilun í gangi, bara svona til að vera alveg viss. Ég fékk símtal nokkrum mínútum síðar og þar sem mér var tjáð að mælingadeildin segði að allt væri í himnalagi en benti mér á að skipta um loftnetssnúru.

Tveimur sjónvarpslausum dögum síðar fréttum við hjá nágrönnum okkar að það væri bilun í götunni og verið væri að vinna að viðgerð. Þremur sjónvarpslausum dögum síðar hringdi ég aftur í „þjónustuver“ Símans og aftur fékk ég að vita að ég væri aftur númer tólf í röðinni. Þegar loksins kom að mér var mér sagt að verið væri að vinna að biluninni en ekkert hægt að segja um hvenær henni yrði lokið. Rúmum fimm sjónvarpslausum dögum síðar fengum við aftur sjónvarp.

Ætli starfsfólk þjónustuvers Símans sé þjálfað til að segja að það bilunin sé hjá fólkinu sjálfu alveg sama hversu ósennilegt það kann að vera?