Silvía beib stóð sig með prýði á laugardaginn, hún var töff og kúl.

Annars er gaman að fylgjast með erlendu Eurovision síðunum, sérstaklega Esctoday en þar tjáir fólk sig um keppnina og margir eiga ekki til orð yfir framlagi okkar. Silvían okkar er a.m.k að vekja mikla athygli því athugasemdir við greinar um hana eru langflestar. Íslendingar á síðunni reyna allt sem þeir geta til að verja hana og útskýra ádeiluna. Annars kemur berlega í ljós að fólk annað hvort elskar hana eða hatar.

Hún þyrfti eiginlega að fá aukafjármagn einhversstaðar frá til að ferðast um Evrópu til að kynna sig og lagið svo fólk átti sig betur á þessari vitleysu allri, það yrði a.m.k. mjög skemmtilegt sjónvarpsefni.

Silvía-aþena

Annars vorum við að ákveða það að skella okkur til Aþenu á Eurovision 2006! Ef það er einhverntímann gaman að fara út til að upplifa Eurovision þá er það svo sannarlega núna. Miðasalan byrjar reyndar ekki fyrr en í lok febrúar svo við bíðum spennt.

Eins verður gaman að koma til Aþenu. Án efa mikið stuð og mikið gaman. Það væri auðvitað gaman ef fleiri vildu koma með svo ef einhverjir vilja skella sér með í ævintýrið þá endilega að láta oss vita. Það er vonandi að sem flestir Íslendingar fari út til að styðja Silvíu Nótt og láti vel í sér heyra. Það er ekki oft sem maður hefur afsökun til að láta eins og fífl.