March 2006
Færslur eftir mánuðum
Thu 30 Mar 2006
Höfundur: Dagbjört
Fært undir:
Matar Æði[7] athugasemdir
Keypti mér malakoff um daginn. Mér hefur alltaf þótt malakoff gott og þar sem ég hef ekki fengið malakoff á brauð í mörg ár fannst mér vera tími til kominn.
Þegar heim var komið las ég innihaldslýsinguna (sem var með pínulitlu letri) og ooooojbarasta…
Innihald: Grísakjöt, dilkakjöt, vatn, folaldakjöt, rotvarnarefni (E250), soyaprótein, kartöflumjöl, salt, mjólkurprótein, þrávarnaefni (E300), sýra (E330), bindiefni.
Held ég hafi ómeðvitað passað mig á því að lesa ekki innihaldslýsinguna áður en ég keypti vöruna. Aftan á pakkningunni er svo táknmyndin af Leonardo sem maður tengir kannski ekki beint við óhollustu, skil reyndar ekki tenginguna milli hans og malakoffs. Kannski er kallinn að segja… þú verður alveg svooona feitur á að borða malakoff.

En ég borðaði þetta nú samt, gat ekki ekki borðað þetta þar sem ég var búin að bíða spennt eftir að fá mér að smakka. Og jú þetta var gott meðan ég borðaði þetta og jú mér leið ekki vel á eftir vitandi af öllu þessu drasli í líkama mínum. En ég mun hinsvegar ekki kaupa þetta aftur.
Ég get þó huggað mig við það að fram kemur skýrum stöfum á rauðum fleti fyrir neðan innihaldslýsinguna að varan sé án MSG.
Mon 27 Mar 2006
Höfundur: bjadddni
Fært undir:
Almennt[6] athugasemdir
Lóan er komin og vorið á næsta leiti þrátt fyrir vetrartíð núna.

Vorið er yfirleitt sá tími þegar minna er að gera í vinnunni og þar af leiðandi meiri tími til að dunda í eigin verkefnum en engin tákn virðast á lofti að það vor sé að nálgast. Það hefur aldrei verið eins mikið af verkefnum á borðinu mínu í Hvíta húsinu, því miður. Er farið að langa til að gera eitthvað á eigin forsendum.
Síðasta vor þá tók ég vikufrí frá vinnunni, fór upp í Borgarfjörð á ættaróðalið og einbeitti mér að því að leggja grunninn að kvikaðri(teiknaðri) stuttmynd byggð á hugmyndafræði litasálfræðinnar. Ég lagðist í mikla rannsóknarvinnu og bjó til handrit að fyrsta hlutanum; rauðum. Ég greip í þetta stöku sinnum um sumarið en þegar ég ætlaði loksins að hefjast handa um haustið þá greip ég í galtómt. Ég fann ekki skissubókina, handritið og rannsóknarvinnuna.
Síðan eru liðnir margir mánuðir og ekki hef ég hvorki fundið skissubókina, handritið né rannsóknarvinnuna. Ekki tangur né tetur af neinu þessu þrátt fyrir að hafa snúið við allri íbúðinni, bæði hátt, lágt og í miðið. Hef ég komist að þeirri niðurstöðu að þetta sé ekki í íbúðinni og þess vegna freista ég þess að auglýsa eftir þessu hér á kjaftakindinni í þeirri von að ég hafi gleymt þessu einhverstaðar í kjánaskap mínum.
Það sem um ræðir er A5 skissubók með kápu bókstaflega plástraða í heftiplástrum (sjá mynd), útprentuð blöð um litasálfræði og litafræði og blöð með kroti.
Sat 25 Mar 2006
Höfundur: Dagbjört
Fært undir:
Eurovision[6] athugasemdir

Þetta er búið. Þrátt fyrir að Silvíu tækist að komast í gegnum undanúrslitin ætti hún ekki séns. Bretar eru búnir að vinna þetta í ár. Sjá myndbandið með laginu þeirra hérna.
Fri 24 Mar 2006
Höfundur: Dagbjört
Fært undir:
Skemmtilegt[4] athugasemdir
Bjarni sendi mér tölvupóst með myndbandinu hennar Silvíu Night í morgun en ég var því miður í tíma og varð því að bíða þangað til ég kom heim til að skoða það. Þegar heim var komið voru þrír aðrir aðilar búnir að senda það á mig svo það er greinilegt að það berst milli manna eins og eldur í sinu. Ég hef svo sem ekkert um myndbandið að segja, þetta var alveg eins og ég bjóst við. Textinn fannst mér aftur á móti góður, sérstaklega þegar hún syngur til Eurovisionkeppninnar og segir "you´ve been waiting forever for me to save you”. Fyrir þær örfáu hræður sem ekki eru búnar að sjá myndbandið má sjá það hér.

Finnska lagið er líka skemmtilegt og ég var að sjá myndbandið þeirra áðan líka. Hver veit kannski er Eurovision hægt og bítandi að færast inn í nútímann og verða frjálslyndari. Hér má sjá finnska myndbandið.
Tue 21 Mar 2006
Höfundur: bjadddni
Fært undir:
Almennt1 athugasemd
Við fórum á ansi hreint magnaðann fyrirlestur í Borgarleikhúsinu í gær.
Þar var rithöfundurinn Andri Snær Magnason að kynna nýju bók sína „Draumalandið - sjálfshjálparbók handa hræddri þjóð“. Í þessari bók ræðst Andri á stóru mál samtímans á Íslandi, virkjanir, álvæðingu og herstöðina með skemmtilegum og einföldum samlíkingum, sterkum rökum og hárfínum húmor. Þar kom meðal annars fram að Iðnaðarráðuneytið (og þar af leiðandi ríkisstjórnin) er með stórfelld virkjanaráform á prjónunum og þarf að virkja allar sprænur á landinu til þess að fylla upp í opinber markmið sem sett voru fram í riti sem Iðnaðarráðuneytið gaf út. Til þess að nýta alla þessa orku sem til verður við þessar virkjanir þá verður að laða hingað stóriðju í áður óþekktri stærðargráðu.

Ég fullyrði að ekkert hefur hrist eins vel upp í mér í mörg ár og eftir fyrirlesturinn var ég bæði reiður og staðráðinn í að leggja mitt af mörkum til þess að koma í veg fyrir fleiri stórslys á hálendi Íslands.
Við Dagbjört ræddum saman, á Kringlukránni yfir bjór og flatböku, um hvað við sem einstaklingar gætum gert.
Kjósa gegn núverandi ríkissjórn og leggja okkar atkvæði á vogarskálarnar gegn virkjanaframkvæmdum.
Samviskan hefur verið að naga mig enda kaus ég Sjálfstæðisflokkinn í síðustu alþingiskosningum og gaf ég þar af leiðandi mitt samþykki fyrir þessari skelfilegu stefnu.Vandamálið er hinsvegar hvað á að kjósa nú. Varla kýs maður Samfylkinguna enda tækifærissinnaður miðjumoðsflokkur sem ekki er treystandi til þess að flauta af stóriðjustefnu núverandi ríkisstjórnar ef hún kæmist til valda. Frjálslyndi flokkurinn er einhverveginn svo mikill brandari og ekki trúverðugur valkostur. Eini raunverulegi kosturinn í stöðunni eru Vinstri grænir og þrátt fyrir margt sem ég er mjög ósammála í stefnu þeirra eru þeir eini flokkurinn sem er klárlega á móti frekari virkjanaframkvæmdum og álvæðingu þjóðarinnar og þar af leiðandi verðugir handhafar atkvæði míns. Við vorum þó búin að ákveða að kjósa þá fyrir nokkru síðan til þess að leggja okkar af mörkum til að stoppa þessa vitleysu. Þrátt fyrir það teljum við okkur hugmyndafræðilega eiga enn mesta samleið með D. Svo er bara ekki hægt að skilja af hverju Framsóknarflokkurinn, sem er örflokkur með lítið sem ekkert fylgi, hafi svona mikið að segja um það hvernig þessum málum er háttað. Ekki má svo gleyma að hann hefur setið báðum megin við borðið; sjórnað bæði Iðnaðar- og Umhverfisráðuneyti þangað til nýlega. Upplifði maður Umhverfisráðherra sem skósvein Iðnaðarráðherra hvað eftir annað.
Það þarf að sannfæra fleiri um að gera slíkt hið sama og besta leiðin til þess er að vekja fólk til umhugsunar um málið með því að nota þau vopn sem Andri Snær hefur nú sett fram í bók sinni. Þetta er hægt að gera það á vinnustaðnum, í fermingarveislum, afmælum, á pöbbnum, í partíum osfrv.
Leggja málstaðnum lið með því að bjóða sig fram í sjálfboðaliðastörf hjá Hætta hópnum, Náttúruverndarsamtökum osfrv.
Nýta sérþekkingu og eigin áhugamál til þess að koma sjónarmiðum náttúrunnar á framfæri.
Grafísk hönnun er mjög öflugt tól til að koma skilaboðum á framfæri til massans og ætla ég að nýta það til hins ýtrasta á næstu misserum í þágu málstaðarins.
Mér finnst samt eins og undanfarið hafi orðið meiri meðbyr með sjónarmiðum þeirra sem ekki vilja spilla ímynd landsins og náttúru með því að virkja hverja sprænu og fylla alla firði af stóriðju - vonandi er þessi meðbyr komin til að vera þannig að hægt sé að slá frekari eyðileggingu af skrifborðum ráðamanna.
Mon 20 Mar 2006
Höfundur: Dagbjört
Fært undir:
Almennt1 athugasemd

Breskt sjónvarpsefni höfðar mikið til mín. Sakna allra þessara snilldarþátta frá Englandinu. Íslensku sjónvarpsstöðvarnar virðast vera byrjaðar að líta meira til Bretalands eftir sjónvarpsefni í stað amerísku vellunnar og er það vel. Væri til í fleiri heimildarþætti samt… og auðvitað Big Brother. Gæti svo sem talið upp endalausa þætti sem ég læt vera.
Hins vegar verð ég að minnast á það að Skjár einn byrjaði fyrir nokkru að sýna þáttinn Top Gear hér á landi. Einhverra hluta vegna horfði ég aldrei á þá úti, sennilega af því að það var svo margt annað skemmtilegt í boði en líklega vegna þess að þetta eru bílaþættir. Ég byrjaði hinsvegar að horfa á þá hérna á Sjá einum og komst að því að þetta eru alveg frábærir þættir. Ég hef nákvæmlega engan áhuga á bílum heldur lít bara á þá sem farartæki og er alveg sama hvort þeir liggi vel, eru rennilegir eða hvað þetta allt nú heitir. Mér hefur alltaf fundist bílaþættir ömurlega leiðinlegir og þurrir.
En þeir kumpánar sem sjá um þennan þátt eru bara svo skemmtilegir. Húmorinn þeirra er mjög góður og þættirnir eru bæði fjölbreyttir og með mikið skemmtanagildi. Það er ekki öllum gefið að geta gert leiðinlega hluti skemmtilega.
Hefði verið tilvalið að fá þá til að gera þætti um algebru þegar ég var í menntó.
Sat 18 Mar 2006
Höfundur: Dagbjört
Fært undir:
Heimavinna[7] athugasemdir
Ég var í tíma í dag í mannfræði og umræðan snerist um það hvort karlmenn væru færir um að þrífa og hvort ætlast væri til eins mikil af karlmönnum og konum. Kennarinn nefndi það að hann hafi eitt sinn unnið við þrif og minni kröfur hafa verið gerðar til þeirra strákanna. Kennarinn velti því fyrir sér hvort þetta hefði breyst með eða hvort viðhorfið sé enn þannig að minni kröfur séu gerðar til þeirra. Stelpa í bekknum nefndi það að hún byggi með strák og stelpu og hún gerði miklu minni kröfur til hans varðandi þrif og þær gengu gjarnan frá eftir hann t.d. eftir samkvæmi. Ég hef verið að heyra önnur svipuð dæmi í gegnum tíðina í kringum mig.

Þetta fékk mig til að hugsa um það hvernig þetta er almennt á Íslandi. Pabbi minn hefur alltaf síðan ég man eftir mér verið einstaklega “duglegur” við allt þetta. Man vel eftir honum ryksuga, vaska upp og baka svakalegar rjómatertur. Þegar ég byrjaði að búa með Bjarna var þetta eins, hann var og er iðinn við þrifin. En það er víst ekki hægt að alhæfa með persónulegum dæmum.
Fri 17 Mar 2006
Jæja, Bjarni tengdi maskínuna í gær. Yndislegt alveg. Þúsund þakkir Jósefína!


Thu 16 Mar 2006
Höfundur: bjadddni
Fært undir:
Skemmtilegt[4] athugasemdir
Hér fyrir neðan er skjámynd af auglýsingaborða frá Landsbankanum af mbl.is. Búið er að snúa myndinni.

Það sem mig langar að vita er af hverju hann Sveppi er með annað heyrnartólið úr iPodinum upp í auganu?
Er þetta kannski hinn margumtalaði Video iPod og til að sjá eitthvað þá þarft þú að stinga ljósleiðara inn í augasteininn?
Tue 14 Mar 2006
Það varð uppselt á aðalkeppni Eurovision en hefðum getað fengið miða á undankeppnina en það hefði bara verið svo ömurlegt ef Silvía hefði komist áfram að vera fyrir utan höllina þegar hún myndi vinna aðalkeppnina.

Ætluðum hvort sem er að millilenda í London þannig að við ákváðum að vera bara lengur í Englandi og fljúga svo aftur heim. Erum búin að kaupa flugmiðana, vorum svo heppin að fá MJÖG ódýra miða.
Ætlum að heimsækja Heiðrúnu og fjölskyldu í Bexhill, Christy í London (fyrrv. kennara hans Bjarna), fyrrv. samnemendur hans, fara í leikhús, þrívíddarbíó, versla, skoða markaði, fara á pöbbarölt, tónleika (ef við finnum einhverja skemmtilega), fá fuglaflensuna o.fl.
Erum opin fyrir uppástungum, þannig að ef þið lumið á einhverjum smellnum hugmyndum endilega að láta þær flakka.
— Next Page »