Tue 14 Mar 2006
Það varð uppselt á aðalkeppni Eurovision en hefðum getað fengið miða á undankeppnina en það hefði bara verið svo ömurlegt ef Silvía hefði komist áfram að vera fyrir utan höllina þegar hún myndi vinna aðalkeppnina.

Ætluðum hvort sem er að millilenda í London þannig að við ákváðum að vera bara lengur í Englandi og fljúga svo aftur heim. Erum búin að kaupa flugmiðana, vorum svo heppin að fá MJÖG ódýra miða.
Ætlum að heimsækja Heiðrúnu og fjölskyldu í Bexhill, Christy í London (fyrrv. kennara hans Bjarna), fyrrv. samnemendur hans, fara í leikhús, þrívíddarbíó, versla, skoða markaði, fara á pöbbarölt, tónleika (ef við finnum einhverja skemmtilega), fá fuglaflensuna o.fl.
Erum opin fyrir uppástungum, þannig að ef þið lumið á einhverjum smellnum hugmyndum endilega að láta þær flakka.
March 14th, 2006 at 10:32
“Jerry Springer the Opera” - leikhúsupplifun sem seint verður toppuð!
March 14th, 2006 at 15:57
Mér sýnist á vef sýningarinnar að hún sé á ferðalagi um Bretland og því ekki sýnd í London þegar við verðum þar.
March 14th, 2006 at 16:38
Jamm þið eigið eftir að skemmta ykkur vel þarna úti…..
Og til hamingju Dæja mín með vinnuna, ekkert smá flott
March 14th, 2006 at 19:45
Þetta hljómar rosalega vel
Ég myndi samt segja takk í bili fyrir fuglaflensuna
March 15th, 2006 at 13:16
Thydir thetta ad tid verdid herna tegar keppnin er?
Rosalega verdur gaman ad fa ykkur, best ad fara ad skipuleggja program thannig ad ykkur leidist alveg orugglega ekki herna hja okkur.
Hvad meinidi med fuglaflensu, hun er ekki komin i neina fugla sem ad vid thekkjum…
Hlokkum mikid til ad hitta ykkur, X
March 15th, 2006 at 23:51
Takk fyrir það Dóra - þetta verður án efa lærdómsríkt.
Já Eva þetta verður örugglega gaman… við virðumst alltaf fara á mismunandi tíma þangað - förum saman til Englands þegar við verðum ríkar.
Heidi… dagsetningin sem ég sendi þér stendur. Þetta var bara sett svona fram á blogginu til að slá ryki í augu innbrotsþjófa Íslands
Við hlökkum mjög mikið til að hitta ykkur og Ellis Heiðar. Það er algjör óþarfi að vera að útbúa einhverja dagskrá. Einmitt svo kósý við Bexhill hvað það er lítið og afslappandi; göngutúrar, ströndin, pöbbar og út að borða.