Mon 20 Mar 2006

Breskt sjónvarpsefni höfðar mikið til mín. Sakna allra þessara snilldarþátta frá Englandinu. Íslensku sjónvarpsstöðvarnar virðast vera byrjaðar að líta meira til Bretalands eftir sjónvarpsefni í stað amerísku vellunnar og er það vel. Væri til í fleiri heimildarþætti samt… og auðvitað Big Brother. Gæti svo sem talið upp endalausa þætti sem ég læt vera.
Hins vegar verð ég að minnast á það að Skjár einn byrjaði fyrir nokkru að sýna þáttinn Top Gear hér á landi. Einhverra hluta vegna horfði ég aldrei á þá úti, sennilega af því að það var svo margt annað skemmtilegt í boði en líklega vegna þess að þetta eru bílaþættir. Ég byrjaði hinsvegar að horfa á þá hérna á Sjá einum og komst að því að þetta eru alveg frábærir þættir. Ég hef nákvæmlega engan áhuga á bílum heldur lít bara á þá sem farartæki og er alveg sama hvort þeir liggi vel, eru rennilegir eða hvað þetta allt nú heitir. Mér hefur alltaf fundist bílaþættir ömurlega leiðinlegir og þurrir.
En þeir kumpánar sem sjá um þennan þátt eru bara svo skemmtilegir. Húmorinn þeirra er mjög góður og þættirnir eru bæði fjölbreyttir og með mikið skemmtanagildi. Það er ekki öllum gefið að geta gert leiðinlega hluti skemmtilega.
Hefði verið tilvalið að fá þá til að gera þætti um algebru þegar ég var í menntó.
March 21st, 2006 at 13:14
Alveg sammála, þetta eru snilldarþættir…
Það var svaka flottur þátturinn þegar þeir komu hingað til Íslands og voru að keyra í fjöru og voru í rallýi…