Thu 30 Mar 2006
Keypti mér malakoff um daginn. Mér hefur alltaf þótt malakoff gott og þar sem ég hef ekki fengið malakoff á brauð í mörg ár fannst mér vera tími til kominn.
Þegar heim var komið las ég innihaldslýsinguna (sem var með pínulitlu letri) og ooooojbarasta…
Innihald: Grísakjöt, dilkakjöt, vatn, folaldakjöt, rotvarnarefni (E250), soyaprótein, kartöflumjöl, salt, mjólkurprótein, þrávarnaefni (E300), sýra (E330), bindiefni.
Held ég hafi ómeðvitað passað mig á því að lesa ekki innihaldslýsinguna áður en ég keypti vöruna. Aftan á pakkningunni er svo táknmyndin af Leonardo sem maður tengir kannski ekki beint við óhollustu, skil reyndar ekki tenginguna milli hans og malakoffs. Kannski er kallinn að segja… þú verður alveg svooona feitur á að borða malakoff.

En ég borðaði þetta nú samt, gat ekki ekki borðað þetta þar sem ég var búin að bíða spennt eftir að fá mér að smakka. Og jú þetta var gott meðan ég borðaði þetta og jú mér leið ekki vel á eftir vitandi af öllu þessu drasli í líkama mínum. En ég mun hinsvegar ekki kaupa þetta aftur.
Ég get þó huggað mig við það að fram kemur skýrum stöfum á rauðum fleti fyrir neðan innihaldslýsinguna að varan sé án MSG.
March 30th, 2006 at 15:48
Ég hefði getað sagt þér þetta, hefur alltaf fundist malakoff sérlega ólystug matvara - og það löngu áður en ég vissi hvað var í því…
En mjög fínt að það innihaldi ekki msg, haha!
March 31st, 2006 at 0:40
He he, er það samt ekki svo að allt er gott í hófi?
Einhversstaðar heyrði ég það….
March 31st, 2006 at 12:36
mér finnst malakoff ógeðslega gott, það hlýtur að vera krakk í því
April 1st, 2006 at 8:13
..og krakkar, serstaklega lifraent raektadir svo thu tharft engar ahyggjur ad hafa af e efnunum.
April 1st, 2006 at 8:16
Anonymous var eg, Hulda.
April 3rd, 2006 at 13:45
Einmitt, djö er ég fegin að borða ekki svona kjöt þá eru ekki svona ógeðslegar freistingar. Siggi keypti einmitt svona um daginn og ég bað hann líka að lesa á innihaldslýsinguna. Hvort sem hann gerði það eður ei þá er þetta óopnað hjá okkur inni í ísskáp. En listaverkið framan á okkar malakoffi var ekki Leonardo, heldur bleikur grís
ha ha
April 3rd, 2006 at 14:36
Malakoff virðist vera heitasta umræðuefnið í dag, spurning hvort Egill Helga taki þetta mál upp í Silfrinu?
Ég held að Leonardo hafi ætlað að hafa myndina svona upphaflega en ekki náð að klára hana vegna þess að hann átti eftir að finna upp malakoffið.