March 2006
Færslur eftir mánuðum
Sun 12 Mar 2006
Höfundur: bjadddni
Fært undir:
Skemmtilegt[3] athugasemdir
Fór í gær út að borða með vinnufélögum af Hvíta húsinu á sushi staðinn Maru í tilefni af nýju nafni, merki og útliti Íslandsbanka sem nú heitir Glitnir en Hvíta húsið sá einmitt um þetta nýja útlit. Sami gamli Íslandsbanki ásamt dótturfyrirtækjum en með nýtt útlit og merki sem er fjarskyldur ættingi Nike merkisins eins og Dagbjört benti mér á.
Á Maru smakkaði ég Sushi í fyrsta skiptið og verð nú bara að viðurkenna að mér finnst mjög lítið til þess koma, kannski ekki vont en mjög langt frá því að vera gott.
Ég og Dagbjört fórum svo á frábæra tónleika á Grandrokk með BOB og Úlpu sem minnir mig á að í rótinni og jaðrinum er mikið skemmtilegra að vera fremur en í yfirborðskenndri auglýsingaframleiðslunni og markaðshyggjunni.
Sat 11 Mar 2006
Höfundur: bjadddni
Fært undir:
Almennt[2] athugasemdir
Fékk vægt áfall þegar ég kíkti á heimabankann minn í gær.
Sá að þar hafði bæst inn reikningur frá Fjársýslu ríkisins upp á einamilljónþrjúhundruðogsjötíuþúsundeitthundraðsjötíuogníu krónur (kr. 1.370,179,-) og það sem verra var að ég kannaðist ekki við að skulda ríkinu tæpa eina og hálfa milljón. Eftir nokkrar hringingar og LAAAANGA bið hjá þremur mismunandi ríkisstofnunum þá fékk ég botn í málið. Ég er með virðisaukanúmer fyrir eigin rekstur (sem enginn hefur verið í 3 ár) og þarf ég því að skila virðisaukaskýrslu á hverju ári. Eitthvað fór það framhjá mér í ár að fylla út núll á eyðublað og setja í póst og því voru þeir svo vinsamlegir hjá Skattinum að áætla á mig þessa smellnu upphæð.
Það er þó hægt að leysa málið auðveldlega með því að fylla hana út og senda skattinum.
Fri 10 Mar 2006

Í tilefni þess að Dagbjört fékk vinnu í Utanríkisráðuneytinu í sumar skelltum við okkur á Tapas í gærkvöldi. Það var vægast sagt ánægjuleg kvöldstund með meirháttar tapas réttum sem voru hver öðrum betri. Ekki spillti fyrir að staðurinn er einstaklega notalegur.
Mælum eindregið með snæðingi þar á bæ.
Wed 8 Mar 2006
Höfundur: bjadddni
Fært undir:
Kvart ,
Skemmtilegt[4] athugasemdir
Sigtið með Frímanni Gunnarssyni byrjar á morgun á SkjáEinum. Langt síðan ég beðið spenntur eftir innlendum dagskrárlið en er jafnframt mjög kvíðinn að þetta eigi eftir að valda mér vonbrigðum enda hefur ekki komið almennilegt grín síðan Fóstbræður voru upp á sitt besta.
Og hvenær koma Fóstbræður eiginlega út á DVD? Það er hægt kaupa Stiklur Ómars Ragnarssonar á DVD, Út og suður með Gísla Einarssyni og síðast en ekki síst Stundina okkar. Þangað til verður bara að duga að fá lánaða gamla VHS upptöku hjá Friðriki bróður.
« Previous Page —