April 2006


Nú fer tími húsflugunnar að koma ef hann er ekki þegar til staðar. Yfir vetrartímann lifir hún, samkvæmt Vísindavefnum, sem lifra undir gólflistum, í sprungum, á milli gólffjala, inni í skápum og annars staðar þar sem þær ná í fæðu, til dæmis brauðmylsnu eða annað sem fellur til við venjuleg heimilisstörf.

Húsflugan

Hér eru meiri upplýsingar um húsfluguna á Vísindavefnum.

Ég hef haft áhuga á húsflugum síðan ég gerði stóra mynd af einni þegar við bjuggum út í Englandi til að fylla tóma hlandgula veggi „íbúðar“ okkar. Síðan þá hefur staðið til að gera röð af verkum um húsfluguna og hófst það vinnsluferli um síðustu helgi þegar ég var upp á Laugalandi heima hjá afa og ömmu en í gluggakistunum þar fann ég þrjár látnar húsflugur og einn geitung.

Hér fyrir ofan er mynd af einni þeirra. Nú er svo bara að bíða eftir að þær fari að láta sjá sig hérna í bænum svo hægt verði að fá fleiri til að sitja fyrir.

Austur í landi Suomi, það land sem við köllum Finnland, gengur tíkin Fanney með hvolp okkar undir belti. Ef allt fer að óskum verðum við komin með Pólskan fjárhund (Polish Lowland Sheepdog, þann fyrsta á Íslandi) inn á heimilið næsta vetur. En þetta er að því gefnu að hún eignist heilbrigða hvolpa og einhver/jir af þeim verði tík/ur en það er það sem við óskum eftir.

Við áttum að fá hvolp undan annarri tík að nafni Osna (sem reyndar er mamma Völla sem er pabbinn) núna í byrjun apríl en það voru vandkvæði og hvolparnir voru dánir áður en þeir fæddust. Þannig að núna er bara að vona það besta að allt gangi vel.

Svona myndi hugsanlegt ættartré líta út.

Fjölskyldutré

Foreldrarnir Fanney og Völli eru af góðum ættum og á Völli t.d. marga titla að baki. Hann er m.a. alþjóðlegur, finnskur, litháenskur, lettneskur, eistneskur, baltneskur, rússneskur og sænskur meistari svo eitthvað sé nefnt.

Fyrir þá sem ekki vita hvernig Pólskur fjárhundur er í útliti, stærð og fasi er hér myndskeið (QT 15 MB) sem ég setti saman úr nokkrum myndbútum af PON síðunni hans Joonasar í Finnlandi.

Hef nánast verið hlekkjaður við tölvuna upp í vinnu undanfarna mánuði og Dagbjört með augun límd við skólabækur og verkefni. Ég hef mest verið að vinna að þremur kvikuðum sjónvarpsauglýsingum fyrir mbl.is og undirvefi sem eru fjölmargir. Upphaflega átti þetta að vera ein 30 sekúndna auglýsing en þegar hafist var handa við að reikna kom í ljós að hver undirvefur hefði þá fengið 2.3 sekúndur til umráða sem dugar skammt.

mbl augl

Hér fyrir neðan er hægt að skoða allar þrjár auglýsingarnar án lesturs, alveg eins og ég vildi hafa þær, en fékk engu um ráðið. Tónlistin er eftir KGB og um aukahljóð og hljóðblöndun sá Gunnar í Upptekið. Athugið að fyrstu 8 sekúndurnar í öllum auglýsingunum eru eins. Skrárnar eru um það bil 7 MB hver á Quicktime sniði.

Nokkrar persónulegar skýrskotanir eru faldar í auglýsingunum - sjáið hvort þið kveikið á þeim.

Auglýsing númer 1.

Auglýsing númer 2.

Auglýsing númer 3.

Garlic Fresh frá Wrigley

Hvítlaukur er eitt af því besta sem ég veit um og er hann mjög mikið notaður í matargerð á þessu heimili mér til mikillar ánægju og yndisauka. Þessi ást mín á hvítlauk gengur þó ekki svo langt að ég bryðji hrá hvítlauksrif í morgunmat því sterkjubragðið finnst mér ekki gott. Ég kann betur að meta kjarnann í bragði hvítlauksins þegar búið er að elda sterkjuna úr.

Ég bíð ennþá spenntur eftir því að einhver tyggjóframleiðandi taki sig saman í andlitinu og framleiði tyggjó með hvítlauksbragði svo hægt væri að njóta hvítlauksbragðsins í dagsins önn, í leik og starfi. Ég er meira að segja búinn að hanna umbúðirnar eins og sést hér að ofan.

Fyrir aðra unnendur hvítlauksins skelli ég hérna uppskrift að hvítlaukssúpu sem Dagbjört eldaði úr matreiðslubókinni hennar Nönnu en aðeins breytt til að gera hana hollari. Þetta er með þeim betri súpum sem ég hef smakkað fyrir utan hvað hún er einföld og ódýr.

Hvítlaukssúpa frá Kastilíu

60 ml ólífuolía

6 hvítlauksgeirar, saxaðir smátt

4 brauðsneiðar, dagsgamlar, skorpulausar

1 tsk paprikuduft

cayennepipar á hnífsoddi

1 l kjúklingasoð eða grænmetissoð

pipar, nýmalaður

steinselja, söxuð

Olían hituð í potti og hvítlaukurinn látinn krauma í henni í nokkrar mínútur við fremur hægan hita án þess að brenna. Brauðið skorið í litla teninga og sett út í. Steikt þar til brauðið er gullið og hrært oft á meðan. Papriku og cayennepipar hrært saman við og síðan soðinu. Hitað að suðu og hrært á meðan. Súpan smökkuð til með pipar og salti og tekin af hitanum. Skreytt með saxaðri steinselju og borið fram strax.

Ferðalag Kronenburg bjórdósarinnar

Við leigðum hina mikið upphæpuðu bíómynd Ferðalag Keisaramörgæsanna um daginn. Hún olli vonbrigðum enda sérlega væmin og hugljúf - örugglega fín barnamynd þó.

Ég var svo að taka til í tölvunni minni í dag og rakst þá á nokkra hreyfimyndabúta sem við tókum upp á stafrænu myndavélina okkar þegar við vorum út í Englandi. Einn þessara búta er sérdeilis skemmtilegur, tekinn í lest á leiðinni frá Kantaraborg til Meyjarsteins þar sem við höfðum vetursetu.

Skoða hreyfimynd hérna. 4.4 MB Quicktime skrá.

kranar

Nýjasta tískan í Reykjavík í dag eru byggingarkranar. Í okkar nágrenni, sem greinilega fylgist vel með, eru byggingarkranar hvert sem litið er; austur, vestur, norður, suður, upp og niður. Við erum að spá í að kaupa einn og planta honum fyrir utan húsið svo við séum nú eins og allir.

Myndirnar hér að ofan eru teknir af öllum krönunum á svæðinu frá Laugardal í gegnum Borgartúnið upp að Höfða en þar er mikið um byggingarvinnu þessa daga.

Undur og stórmerki áttu sér stað í gær var ég að taka til og fletta í gegnum ársbúnka af reikningum, yfirlitum, kvittunum, greiðsluseðlum, gulum miðum og þess kyns dóti sem ég safna alltaf saman á einn stað. Neðst í þeim bunka var einmitt mappa með skissubókinni sem ég er búinn að vera að leita að í ár og skrifaði færslu um fyrir örfáum dögum síðan. Merkileg tilviljun.

skissubok

En hún er þá fundin og get ég tekið gleði mína á nýjan leik og hafist handa við að vinna upp glataðan tíma. Við flettingu hennar komu meira að segja fleiri hugmyndir í ljós sem ég hafði gleymt og vert er að skoða betur.

Til þess að hún týnist nú ekki aftur ákvað ég að merkja hana vel og vandlega með áberandi „takið eftir“ límmiðum á nokkrum vel völdum tungumálum (sjá mynd).