Thu 20 Apr 2006

Við leigðum hina mikið upphæpuðu bíómynd Ferðalag Keisaramörgæsanna um daginn. Hún olli vonbrigðum enda sérlega væmin og hugljúf - örugglega fín barnamynd þó.
Ég var svo að taka til í tölvunni minni í dag og rakst þá á nokkra hreyfimyndabúta sem við tókum upp á stafrænu myndavélina okkar þegar við vorum út í Englandi. Einn þessara búta er sérdeilis skemmtilegur, tekinn í lest á leiðinni frá Kantaraborg til Meyjarsteins þar sem við höfðum vetursetu.
Skoða hreyfimynd hérna. 4.4 MB Quicktime skrá.
April 24th, 2006 at 9:43
hehehehee
Gaman að sjá bjórdósir í ferðalagi.. kemur ekki framhald?
April 25th, 2006 at 21:26
Framhaldið kemur næst þegar við förum í lest…