Tue 25 Apr 2006
Austur í landi Suomi, það land sem við köllum Finnland, gengur tíkin Fanney með hvolp okkar undir belti. Ef allt fer að óskum verðum við komin með Pólskan fjárhund (Polish Lowland Sheepdog, þann fyrsta á Íslandi) inn á heimilið næsta vetur. En þetta er að því gefnu að hún eignist heilbrigða hvolpa og einhver/jir af þeim verði tík/ur en það er það sem við óskum eftir.
Við áttum að fá hvolp undan annarri tík að nafni Osna (sem reyndar er mamma Völla sem er pabbinn) núna í byrjun apríl en það voru vandkvæði og hvolparnir voru dánir áður en þeir fæddust. Þannig að núna er bara að vona það besta að allt gangi vel.
Svona myndi hugsanlegt ættartré líta út.

Foreldrarnir Fanney og Völli eru af góðum ættum og á Völli t.d. marga titla að baki. Hann er m.a. alþjóðlegur, finnskur, litháenskur, lettneskur, eistneskur, baltneskur, rússneskur og sænskur meistari svo eitthvað sé nefnt.
Fyrir þá sem ekki vita hvernig Pólskur fjárhundur er í útliti, stærð og fasi er hér myndskeið (QT 15 MB) sem ég setti saman úr nokkrum myndbútum af PON síðunni hans Joonasar í Finnlandi.
April 26th, 2006 at 2:15
Þú náðir alveg að selja mér hann með þessu myndskeiði. Doldið eins og lítill björn, eða stór kústur!
April 26th, 2006 at 11:55
Já mér fannst hann einmitt minna mig á snjómanninn ógurlega á þessu myndskeiði.
April 27th, 2006 at 11:42
En spennó!
Já, hann er vel uppalinn, þessi
Til hamingju með nýja fjölskyldumeðliminn, þið verðið alveg frábærir foreldrar