May 2006
Færslur eftir mánuðum
Thu 25 May 2006
Höfundur: bjadddni
Fært undir:
SkemmtilegtEngar athugasemdir
Á morgun er uppstigningardagur sem þýðir m.a. frí frá vinnu fyrir allflesta.
Fyrir þá sem kvíða þess að hafa ekkert að gera má benda á að marga afþreyingu er hægt að finna hér í Reykjavík sem kostar ekki neitt.

Um þessar mundir er t.d. frítt í Þjóðminjasafnið í tilefni af tilnefningu sem safn evrópu og verður þannig þar til þessum vetrarmánuði lýkur. Þar eru misáhugaverðir hlutir til sýnis en uppsetningin á sýningunni eru einkar skemmtileg og fræðandi og í rauninni nauðsynlegt að fara í nokkur skipti til þess að ná utan um hana.

Listasafn Íslands er nú í boði Samsonar, sem m.a. eiga Landsbanka Íslands, en þar er í gangi sýning á verkum Birgis Andréssonar og Steingríms Eyfjörð. Verkin hans Birgis eru t.d. mjög skemmtileg en í þeim blandar hann saman myndlist og grafískri hönnun með skemmtilegum og mjög áhugaverðum árangri.

Á morgun er síðasti opnunardagur útskriftarsýningar Listaháskóla Íslands í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsinu við Tryggvagötu. Þar er ókeypis inn á mjög góða og fjölbreytta sýningu sem spannar allt frá myndlist, byggingarlist, fatahönnun, vöruhönnun og upp í grafíska hönnun.

Í miðbænum er líka hægt að kíkja á Landnámssýninguna í kjallara nýja hótelsins á horni Aðalstrætis og Túngötu. Við höfum ekki farið á hana en ætlum einmitt að fara á morgun. Það kostar 600 krónur á pleisið nema fyrir þá sem eru svo heppnir að vera aldraðir eða öryrkjar, þeir borga aðeins 300 krónur.
Góða skemmtun!
Tue 23 May 2006
Höfundur: Dagbjört
Fært undir:
Matar Æði[5] athugasemdir

Ákváðum í gær að elda eitthvað sem við höfðum ekki prófað áður. Eftir skoðunarferð í Nóatúni var ákvörðunin tekin. Smokkfiskur varð fyrir valinu. Ekki það girnilegasta sem hugsast getur (holur fiskur!) en við höfðum hvorugt smakkað hann þannig að við ákváðum að slá til.
Fórum eftir uppskriftinni sem fylgdi með sem var "smokkfiskur í basil-tómatsósu". Sósan var mjög góð en fiskurinn var algjört ógeð. Hrikalega var þetta vont, eiginlega bara viðbjóðslegt. Get ímyndað mér að smokkar (eins og í getnaðarvarnir) bragðist svona, gúmmíkennt og ógeðslegt. Eftir þrjá pínlega munnbita var réttinum hent í ruslið og pylsubrauði með osti skellt á grillið þar sem það var það eina sem til var. Aldrei hefur pylsubrauð bragðast jafn vel… líklegast var það vegna misþyrmingarinnar sem bragðlaukarnir höfðu orðið fyrir.
Tue 23 May 2006
Höfundur: bjadddni
Fært undir:
Skemmtilegt1 athugasemd

Skemmtileg stuttmynd sem lýsir okkur jarðabúum ágætlega.
Mon 22 May 2006
Höfundur: Dagbjört
Fært undir:
Almennt[2] athugasemdir

Björn Ingi auglýsir eigið ágæti grimmt og galið á lokasprett sveitalegu kosninganna. Í einni Exbé auglýsingunni er auglýst hin eina sanna gleði stjórnmálanna og er gert að því skóna að Björn Ingi sé helsti talsmaður þessarar sönnu gleði yfir ýmsum myndbrotum af honum skælbrosandi í viðtölum eða á fundum.
Nú er heldur betur komið annað hljóð í þennan stílfærða Framsóknarbúk því samkvæmt nýjustu könnunum fær hann ekki starfið sem hann sækist eftir. Í síðasta þætti af Silfri Egils skildi Bjössi eftir brosið heima og gott betur því hann var frekar þungur á brúninni og mjög pirraður. Hann er því í hrópandi ósamræmi við þann Björn Inga sem auglýstur er.
Hér er hægt að skoða þáttinn góða.
Mon 22 May 2006
Höfundur: bjadddni
Fært undir:
Eurovision[2] athugasemdir
Sönglagakeppni Evrópu er þá lokið.

Silvíu gekk svona illa af því að atriðið var bara ekki nógu súrt. Fyrir þá sem ekki vissu að þetta var grín leit þetta bara út eins og hvert annað hallærislegt yfirdrifið júróvisjón atriði eins og t.d. pólska atriðið (gaurinn með græna hárið og ólétta söngkonan) sem var eiginlega fyndnara heldur en okkar því þeim var alvara. Silvía var að gera grín að þessu en með því að hafa vísanir í hið týpíska (eins og að láta dansarana lyfta henni og hlaupa með fána) þá var hún í raun um leið að setja atriðið niður á sama plan fyrir þá sem ekki vissu um hvað málið snerist. Mér fannst búningarnar t.d. ekki vera nægilega ýktir, vantaði alla litadýrðina sem einkenndi þetta í forkeppninni hérna heima.
En Lordi vann þó sem kom verulega (en skemmtilega) á óvart. Nú þegar hafa komið fram samsæriskenningar um af hverju þeir sigruðu. Ég held hinsvegar að þeir hafi einfaldlega unnið af því að þeir voru með besta lagið og besta atriðið. Mjög einfalt.
Sigur þeirra er blaut tuska í andlit allra þeirra klisjukenndu-poppfroðu-fallegafólks-kroppasýningaratriða sem komið hafa fram í keppninni undanfarin ár - blaut og subbuleg tuska sem segir: takið ykkur saman í andlitinu og komið með eitthvað sem varið er í. Það verður gaman að sjá hvaða áhrif þetta hefur á keppnina á næsta ári í Helsinki, ef einhver.
Hér er upptaka úr gríska sjónvarpinu um Silvíu Nótt.
Thu 18 May 2006
Höfundur: bjadddni
Fært undir:
Almennt[2] athugasemdir
Undanúrslit Sönglagakeppni Evrópu er í kvöld og svo úrslitin á laugardaginn og til að sigra þarf að vinna kjósendur á sitt band. Á laugardaginn 27. maí eftir rúma viku eru svo sveitastjórnakosningarnar og þar þarf líka að kjósa.
Sveitastjórnakosningarnar geta lært margt af Sönglagakeppni Evrópu til að laða að fleiri kjósendur. Fyrir það fyrsta er nafnið sem er alveg ómögulegt, mjög sveitalegt og ekki í takt við nýja tíma og nýja öld svo ekki sé meira sagt. Helst að fólk tengi það við sveita- og fornaldarhugsunarflokkinn Framsókn. Kannski það útskýri af hverju þeir eru eins valdamiklir og raun ber vitni, það er allavega erfitt að finna aðra ástæðu því ekki hafa þeir fylgi á bakvið sig.
Það vantar betra og meira grípandi nafn á sveitastjórnarkosningarnar eins og t.d. X TvöþúsundogSEX eða bara X SEX. Bæði sexí og grípandi. Framboðin eru þó skrefinu á undan umgjörðinni því eins og prófessor Goddur benti á í Kastljósi um daginn þá eru frambjóðendunum stillt upp eins og fatamódelum úr Hagkaupsbæklingnum eða popphljómsveitir í myndatöku.
Annað sem væri sniðugt er að taka upp símakosningu eða netkosningu og að allir fengju að kjósa eins oft og þeir vildu. Það er poppað og skemmtilegt og mikið minni kostnaður en að halda úti talningarstöðvum um land allt, svo við tölum nú ekki um allan kolvísýringin sem myndast þegar kjósendur keyra á kjörstað og tíminn sem er tekinn frá fjölskyldunni enda kosningar alltaf á laugardögum. Svo þarf ekki að telja upp úr kössunum sem tekur óratíma þannig að bið eftir úrslitum verður úr sögunni og hægt að gera eitthvað annað betra við tímann en að vera fullur á kosningavöku.
Svo væri líka hægt að setja þetta upp sem raunveruleikaþátt; Frambjóðandinn 2006. Þetta væri blanda af Survivor og Idol. Þá væri þetta þannig að í upphafi væri hvert framboð með eitt lið sem síðan væru kosin burt eitt af öðru þangað til að eitt framboð væri eftir. Það framboð sem sigrar væri þá með fjóra borgarfullrúa af tíu, það lið sem væri í öðru sæti væri með þrjá og svo koll af kolli. Í seinnihluta þáttaraðarinnar myndi sigurframboðið keppa inbyrðis um það hvernig raða væri á listann og einn kosin út í hverjum þætti þangað til sigurvegarinn stæði einn eftir. Hann væri þá borgarstjórinn.
Ég hef heyrt margt vitlausara en þetta um ævina.
Sat 13 May 2006
Höfundur: bjadddni
Fært undir:
Matar Æði ,
Útlönd[5] athugasemdir

Í London hungraði okkur í indverskan mat og flettum við því í útprentunum af veraldarvefnum að heiman. Upp úr hattinum kom nafnið Tamarind sem ekki var ýkja langt frá hótelinu okkar. Tólið á hótelsímanum var því rifið upp og borð fyrir tvo pantað.
Þegar á staðinn var komið brá okkur örlítið í brún því þetta var aðeins fínna en okkur hafði órað fyrir, dáldið MIKIÐ fínna. Eftir að okkur var fylgt til sætis af móttökufólkinu í gylltumskreyttum sal var heill her af brosandi þjónustufólki sem stjanaði við okkur eins mikið og hægt var, hristi munnþurkuna í kjöltu okkar, helti í glösin næstum því eftir hvern sopa og fylgdist grannt með hvort nokkuð amaði að hjá okkur.
Maturinn var einstaklega ljúffengur og alveg hægt að mæla með þessum stað fyrir Lundúnafara nær og fjær. Þótt verðið hafi verið í hærra lagi var það hverra pennía virði - svipað dýrt og að fara fínt út að borða hérna á Íslandi eins og t.d. á hinum frábæra stað Austur Indíafélaginu sem ávallt er hverra krónu virði og rúmlega það.

Við létum ekki þar við sitja heldur borðuðum við gómsætan indverskan í Bexhill með Heiðrúnu og Andy og tvisvar á pöbbum í London, annað skiptið með Halla og Hörpu. Svo keyptum við líka indverska matreiðslubók sem við erum að prufa uppskriftir upp úr þessa dagana.
Mmmm….
Sat 13 May 2006
Höfundur: bjadddni
Fært undir:
Almennt ,
Útlönd[2] athugasemdir
Við höfum lítið getað sinnt þörfum kjaftakindarinnar síðustu vikur.
Daginn eftir að Dagbjört kláraði prófin í lok apríl flugum við til Englands og heimsóttum Heiðrúnu, Andy og nýfæddan son þeirra Ellis Heiðar Scrimshaw í tvo daga í Bexhill á suðurströnd Englands. Þar vorum við í góðu yfirlæti og góðu veðri og skemmtum okkur mjög vel. Síðan vorum við á hóteli við Oxford stræti í London í 3 daga og nutum lífsins til hins ítrasta í hitabylgju sem síðan færði sig yfir til Íslands um það leyti sem við komum heim.
Það var frekar skemmtilegt að fyrir algera tilviljun höfðu Halli og Harpa bókað sama flug bæði til Englands og aftur heim á leið þeirra til Austurríkis. Ótrúlega fyndið.
Þegar heim var komið um síðustu helgi fórum við nánast beinustu leið á Snæfellsnesið í helgaraferð. Fríið var svo kórónað hér í höfuðborginni með þriggja daga afslöppun áður en vinnan byrjaði aftur hjá mér og Dagbjört hóf sumarvinnuna hjá Utanríkisráðuneytinu á fimmtudaginn.
Við hefðum alveg viljað hafa fríið ÖRLÍTIÐ lengra.