Thu 25 May 2006
Á morgun er uppstigningardagur sem þýðir m.a. frí frá vinnu fyrir allflesta.
Fyrir þá sem kvíða þess að hafa ekkert að gera má benda á að marga afþreyingu er hægt að finna hér í Reykjavík sem kostar ekki neitt.

Um þessar mundir er t.d. frítt í Þjóðminjasafnið í tilefni af tilnefningu sem safn evrópu og verður þannig þar til þessum vetrarmánuði lýkur. Þar eru misáhugaverðir hlutir til sýnis en uppsetningin á sýningunni eru einkar skemmtileg og fræðandi og í rauninni nauðsynlegt að fara í nokkur skipti til þess að ná utan um hana.

Listasafn Íslands er nú í boði Samsonar, sem m.a. eiga Landsbanka Íslands, en þar er í gangi sýning á verkum Birgis Andréssonar og Steingríms Eyfjörð. Verkin hans Birgis eru t.d. mjög skemmtileg en í þeim blandar hann saman myndlist og grafískri hönnun með skemmtilegum og mjög áhugaverðum árangri.

Á morgun er síðasti opnunardagur útskriftarsýningar Listaháskóla Íslands í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsinu við Tryggvagötu. Þar er ókeypis inn á mjög góða og fjölbreytta sýningu sem spannar allt frá myndlist, byggingarlist, fatahönnun, vöruhönnun og upp í grafíska hönnun.

Í miðbænum er líka hægt að kíkja á Landnámssýninguna í kjallara nýja hótelsins á horni Aðalstrætis og Túngötu. Við höfum ekki farið á hana en ætlum einmitt að fara á morgun. Það kostar 600 krónur á pleisið nema fyrir þá sem eru svo heppnir að vera aldraðir eða öryrkjar, þeir borga aðeins 300 krónur.
Góða skemmtun!