June 2006


Má ég kynna þessa myndarlegu ungu höfuðkúpu. Bjadddni beinagrind

Svona lít ég út undir lögum af húð, vef, vöðvum, taugum og blóði. Einhverntíman mun ég líta svona út í alvöru þegar maðkar og ormar eru búnir að japla allt utan af andlitinu á mér.

Ég fór í tölvusneiðmyndatöku í síðustu viku og þetta eru myndir úr henni. Eins og sést á myndunum þá er ég ekki fullkomlega eðlilegur því annað kinnbeinið er afmyndað. Ég er með mjög sjaldgæfan góðkynja æxlisvöxt í öðru kinnbeininu (Fibrous Dysplasia) sem veldur því að beinið stækkar vegna bandvefsvaxtar í mergholi þess. Þetta hef ég vitað í tæp tuttugu ár og fór meira að segja í uppskurð vegna þess þegar ég var ellefu ára þar sem kinnbeinið var raspað niður. Sá uppskurður misheppnaðist því beinið óx aftur í sömu stærð og áður. Það hefur hinsvegar haldið sér á mottunni síðan þannig að læknirinn mælir ekki með því að fara eiga eitthvað við þetta. Ég finn ekkert fyrir þessu, hvorki verkir né annað, en útlitslega þá veldur það því að ég er ekki alveg samhverfur í andlitinu þar sem önnur kinnin er jú aðeins stærri.

Hér er svo allt sem þig hefur alltaf langað til að vita um Fibrous Dysplasiu. Úúúú spennandi.

Allir í kringum okkur virðast vera að fá sér hunda sem bara skemmtilegt.

Var að skoða heimasíðu HRFÍ og rakst á viðhorfskönnun framjóðenda sveitastjórnakosninganna gagnvart hundahaldi í Reykjavík. Þar kom margt skemmtilegt í ljós sérstaklega það að Sjálfstæðisflokkurinn er ákaflega jákvæður gagnvart hundahaldi og hundaeigendum. Benti Villi á að það er frekar kjánalegt að banna hundahald með undanþágum þar sem öllum er í raun leyft að fá sér hunda með skilyrðum. Frekar á að sjálfsögðu að leyfa hundahald með skilyrðum.

Skemmtileg tilbreyting frá því að líkja hundum við byssur eins og Stefán Jón Hafstein vill láta vera. Framsóknaflokkurinn er einnig mjög jákvæður svo það er bara að vona að Villi og félagar standi við stóru orðin. Hér er viðtalið við Vilhjálm í heild sinni:

PON

Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson í 1. sæti fyrir Sjálfstæðisflokkinn

1) Myndir þú leyfa hundahald í Reykjavík?

Já, enda fá allir þeir sem vilja halda hund í dag og uppfylla ákveðin skilyrði, undanþágu frá banninu.

2) Segðu okkur frá stefnu þíns lista í málum hundaeigenda í borginni.

Við teljum kerfið vera öfugsnúið eins og það er núna. Hundahald er bannað, en allir geta samt fengið hund að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Við viljum að hundahald verði heimilað, að uppfylltum svipuðum skilyrðum og gilda í dag. Þannig gerum við umhverfið jákvæðara gagnvart hundum, en drögum ekki úr þeim kröfum sem við gerum á hendur hundaeigendum, svo sem um þrifnað og öryggismál gagnvart þeim borgarbúum sem ekki kæra sig um að vera nálægt hundum. Fyrir utan þetta má nefna að við viljum fjölga svæðum þar sem hundaeigendur mega vera með hunda sína lausa. Það þarf að gerast á afgirtum, eða afmörkuðum svæðum þar sem það truflar ekki þá sem vilja síður mæta lausum hundi.

3) Er einhverra breytinga von í átt að rýmri reglum, t.d. að hundaeigendur fái að fara víðar um með hundana sína en nú er?

Já. Við teljum að yfirgnæfandi meirihluti hundaeigenda fari eftir settum reglum og sýni mikla ábyrgð í meðferð sinna hunda. Þessvegna ætti til dæmis að vera óhætt að leyfa fólki að ganga með hundana sína í ól um miðborg Reykjavíkur, eins og í öðrum hverfum borgarinnar, enda hefur það almennt farið vel fram.

4) Hvers vegna eru leyfisgjöld mun hærri í Reykjavík en nágranna sveitarfélögunum?

Við teljum að það þurfi að endurskoða bæði leyfisgjöldin og handsömunargjaldið. Þessi gjöld eru talsvert hærri en í nágranna sveitarfélögunum. Ég ætla ekki að fjölyrða um ástæðuna fyrir því, en ég held að með einfaldari og skýrari reglum ætti að vera möguleiki að gera þetta gjald sanngjarnara.

5) Finnst þér að handsömunargjaldið, 21.500 krónur, sé sanngjarnt miðað við það að þetta gjald eigi eingöngu að standa undir kostnaði við að handsama hundinn?

Vissulega er þetta nokkuð hátt gjald, en hinu má ekki gleyma að ef hundur er laus í þéttbýli, er eigandinn að brjóta reglur. Það er hagur allra að hundaeigendur fari í einu og öllu eftir þeim reglum sem settar eru í borginni. En ýmislegt bendir til að þetta gjald gæti verið eitthvað lægra, og við munum skoða það eins og áður segir.

6) Finndist þér hugsanlegt að hundaeigandi greiddi tryggingargjald fyrir hvern hund umfram einn?

Hann greiddi þá eitt leyfisgjald, en ef hann stendur sig varðandi allar reglur þá þyrfti hann ekki að greiða leyfisgjald fyrir hinn/hina hundana. Stjórnmálamenn eiga að vera opnir fyrir öllum góðum hugmyndum og ég er reiðubúinn til að skoða þetta vel. Hinsvegar er ljóst að vinna við að skrá hund númer tvö og þrjú er alveg jafn mikil og við að skrá fyrsta hundinn og umsýslan minnkar ekkert að ráði.

bóksafn

Herra helvíti sem hefur verið hluti af mér í 7 ár hefur verið drepinn og jarðaður. Það er erfitt að fylla í tómrúmið, í rauninni kemur ekkert í staðinn.

Ég skipti sjálfum mér semsagt í tvennt; annarsvegar hönnun og kvikun á vefslóðinni nothing.is og hinsvegar myndlist og ljósmyndun á vefslóðinni bjadddni.nothing.is

Þarna er að finna ýmistlegt sem ég hef gert ásamt áður óséðu efni. Er svo að vinna í meira efni sem ég mun að sjálfsögðu setja inn jafnóðum.

Hér er frétt á mbl um kynningu deiliskipulags nýs háskólasjúkrahúss og fylgir fréttinni mynd þar sem fyrirhugað svæði spítalans er afmarkað með rauðri línu.

Ef þetta svæði er afmarkað á loftmynd eins og hér fyrir neðan sést hve ótrúlegt landflæmi fer undir þennan spítala. Ekki er hægt að byggja upp í loft sökum flugvéla sem koma inn til lendingar á Reykjavíkurflugvelli og því verða þetta margar lágreistar byggingar sem dreifast yfir mikið svæði sem gerir allar vegalendir innan spítalans stjarnfræðilegar. Það segir sig sjálft að betra er að byggja upp í loftið þar sem löngum vegalengdum er eytt með lyftum milli hæða.

Landspítali

Fyrirhugað svæði er 198.777 fermetrar að flatarmáli, rétt tæplega 20 hektarar, sem er vel yfir tvöfalt það pláss sem tjörnin tekur. Svona í samhengi við alla þessa umræðu um þéttingu byggðar, verðmæti byggingarlands í miðbæ Reykjavíkur væri þá ekki sniðugt að byggja þennan spítala á einhverjum öðrum stað? Hver eru eiginlega rökin við að byggja hann upp þarna?

Geisladiskar

Dr. Gunni ákvað að selja alla sína geisladiska um daginn (og er ennþá að). Við gátum að sjálfsögðu ekki á okkur setið og keyptum þónokkra góða diska hjá honum. Hann heldur því fram að betra sé að hlusta á tónlist á mp3 formi og hann sé nær hættur að hlusta á geisladiska. Kannski er þetta snjallt hjá honum. Eitt er þó víst að hann á eftir að raka inn pening á þessu enda á hann stórt og mikið safn. Saknaði reyndar Bob Dylan og gömlu Bubba diskanna úr safninu.

Fengum nokkra diska sem voru skrifaðir eða demo í kaupbæti og einn þeirra var diskur hennar Silvíu Nótt. Mjög skondin lög þar á ferð.

Keyptum annars eftirfarandi diska:

Íslenskt

Búdrýgindi - Juxtapos

HAM - Lengi lifi

Jan Mayen - Home of the free indeed

Kimono - Arctic death ship

Múm - Summer make good

Spilverk þjóðanna - Ísland

Strigaskór #42 - Blót

Sugarcubes - The Great Crossover Potential

Björk - Gling gló

Ég - Plata ársins

Sálin hans Jóns míns - Þessi þungu högg

Erlent

Beatles - Anthology 3 (2 cds)

Beatles - Anthology 2 (2 cds)

Beatles - Abbey Road

Beatles Sgt. Pepper's Lonely Hearts Club band

…af súkkulaðigosbrunni.

Myndin er úr vinnupartíi Hvíta hússins síðastliðinn föstudag en þar var boðið upp á ferska ávexti sem maður skellti undir þennan forláta þriggja hæða súkkulaðigosbrunn.

Dolli brjálast

Fórum á Roger Waters í gær.

Tónleikarnir voru að mestu leiti frábærir en mér fannst ég vera rifinn niður úr hæstu hæðum þegar einhver annar er Roger söng í þeim lögum sem Gilmour var vanur að syngja. Þá varð þetta allt í einu svo augljóslega ekki Pink Floyd og gat alveg eins verið Dúndurfréttir því það syngur enginn Pink Floyd eins og Gilmour. En Roger stóð sig hinsvegar mjög vel og söng með miklum tilþrifum og af mikilli sannfæringu. PIG

Grafíkinni sem varpað var á skjáinn var ekkert til að hrópa húrra fyrir miðað við það sem Pink Floyd voru og eru þekktir fyrir. Augljóst að Roger nýtir sér ekki krafta Storm Thorgersonar sem hefur verið hirðhönnuður hjá Pink Floyd nánast síðan þeir byrjuðu. Þó voru nokkrir ljósir punktar og þá sérstaklega í Dark Side of the Moon hlutanum. T.d. mjög flott þegar vínilplatan varð að auga og síðan tunglinu og þar fram eftir götunum. Það sem hægt var að finna að umgjörðinni var nokkuð:

  1. Okkur var bannað að taka með bjór inn á sjálft tónleikasvæðið sem við keyptum í forsalnum. Ómögulegt að skilja af hverju því það var selt gos inn og hægt að fá vatn þar.

  2. Mjög illa gengið frá gluggaklæðum þannig að mikil ljósmengun spillti fyrir ljósasýningunni og grafíkinni sem varpað var á tjald bakvið sviðið.

  3. Vantaði að hafa risaskjái þar sem því sem fór fram á sviðinu væri varpað upp. Bæði er þetta mjög stórt tónleikasvæði og svo eru ekki allir jafn heppnir að vera yfir 190 sentimetrar.

Svo eru svona risatónleikar auðvitað algjör leiðindi því allt er svo mikið vesen, að fara á salernið, að kaupa sér bjór, að komast á staðinn, að komast inn, að komast út og að komast heim. Það vantar alveg almennilegan tónleikasal sem tekur nokkur þúsund manns bæði í sæti og stæði. Astoria tónleikahöllin í London er hinn fullkomni tónleikastaður. Þar er hægt að sitja á svölum við borð (aldrei hausar fyrir þér) eða standa við sviðið. Það er hægt að kaupa sér bjór og drekka hann á meðan maður nýtur tónlistarinnar, auðvelt að komast á salernið og auðvelt að komast út og inn því þetta er bara 1600 manna staður.

Það þurfa ekki allir tónleikar að vera RISA.

mbl með augl

Stjórnendur mbl.is eru gjörsamlega farnir yfir strikið í magni auglýsinga á síðunni, svo mikið að það veldur mér miklum andlegum óþægindum að fara inn á síðuna. Hreinlega ekki hægt að láta bjóða sér þetta. Fyrir notendur Firefox vafrans er þó til ráð því hægt er að setja inn viðbót sem tekur út allar auglýsingar eins og myndin hér fyrir neðan sýnir. Alger himnasæla og hreinlega nýtt líf á öldum veraldarvefsins.

mbl.is án augl

Fyrir þá sem það ekki vita þá er þessi viðbót sett inn með því að fara í „Tools“ og „Extensions“ í Firefox. Þá opnast nýr gluggi en þaðan er farið í „Get more extensions“ og þá kemur upp síða þar sem hægt er að finna allskonar viðbætur og þar á meðal Adblock. Fylgið svo bara leiðbeiningunum til að setja þetta inn. Athugið að það þarf að endurræsa vafrann til að virkja viðbótina.

Til að loka á auglýsingar á mbl.is þarf að stilla viðbótina og þá er aftur farið í „Tools“ en svo í „Adblock“ og svo „Preferences“. Í línunni „New filter“ er skrifað „mbl.is/augl“ og ýtt á „add“ hnappinn. Til að loka á allar auglýsingar á visir.is og blog.central.is er gert það sama nema í „New filter“ er skrifað „oams.visir.is/ads“.

Því miður hefur það komið í ljós að hvolpur af ættum Polski Owczarek Nzinny mun ekki koma til Íslands í sumar. Þessi tvö got sem fyrirhuguð voru heppnuðust ekki. Næsta got verður ekki fyrr en næsta haust í Finnlandi. Af þessum sökum erum við byrjuð að líta á önnur krúttlegri mið.

Next Page »