Thu 1 Jun 2006

Í Blaðinu í fyrradag er grein með fyrirsögninni „Barnlausir einstaklingar vanræktir í kosningum“. Í undirfyrirsögn er svo sagt: „Prófessor í stjórnmálafræði segir hugsanlega ástæðu fyrir lélegri kjörsókn vera áhugaleysi flokka á málefnum barnlausra einstaklinga.“
Téður prófessor, Ólafur Þ. Harðarson, segir svo: „Það gæti verið að stefnumál flokkanna hafi beinst of mikið að fjölskyldum og eldra fólki og því hafi einstaklingurinn gleymst.“ „ Allir flokkar voru að bjóða umfangsmikla félagsþjónustu en ekki að lækka skatta eða önnur málefni sem varða einstaklinginn.“
Við hérna á Laugarnesveginum vorum einmitt að ræða þetta nokkrum dögum fyrir kosningar hversu áberandi það væri að framboðin kepptust um atkvæði barnafólks en mikið minna, ef þá eitthvað, um atkvæði okkar hinna. Loforð um minna skutl, ókeypis leikskóla, frístundakort upp á 50 þúsund fyrir hvert barn, samhangandi skóladag og þar fram eftir götunum var það sem hamrað var á. Það er hinsvegar mjög skrýtið því börn eru jú bara á þessum aldri í örfá ár en fólk hefur líklega kosningarétt í 60 - 70 ár. Þeir sem annaðhvort eiga ekki börn eða börn sem eru vaxin úr grasi eru þá líklega í miklum meirihluta kjósenda og því skrýtið að svona mikið skuli vera keyrt á þessu.

Fyrir utan þetta er líka áhugaverð sú staðreynd að skattgreiðendur sem ekki eiga börn séu að greiða fyrir þetta í stað þess að lækka skatta eða eitthvað annað sem kemur öllum vel. Fólk hefur þá sjálft vald yfir því hvað það notar peninginn í.
June 2nd, 2006 at 10:56
Nú hef ég ekki flokkast sem “einstaklingur” í svolítinn tíma eins og sést hér á nafninu mínu, væruð þið til í að útskýra fyrir mér nokkra hluti? Eins og:
Er einstaklingur maður einsamall eða mega pör flokkast sem einstaklingar? Geta einstaklingar ekki verið “eldra fólkið”?
Á hvaða rétti einstaklinga er brotið og hvað, í þessum kosningarloforðum öllum, hefðuð þið viljað sjá sem beinast sérstaklega að einstaklingum?
Þið talið um skattbyrði á einstaklingum sem er barnafólki meira í hag; hvernig kerfi eigum við þá að koma upp sem passar það að þið séuð örugglega ekki að borga fyrir dagvistun annarra barna? Haldið þið að verið sé að hefta ykkur á einhvern hátt, eða á sama hátt og greiðslubyrði hjá barnafólki getur verið ansi heftandi fyrir barnafólkið? Og annað: Ef einstaklingum er svo annt um þetta litla fé sem rennur til félagsmála einu sinni í mánuði, hvernig getum við hagað málum þannig að barnafólk þurfi ekki að borga undir ýmislegt sem einstaklingar taka upp á, svo sem sjúkrakostnað vegna áhugamála sem fela í sér mjög miklar áhættur?
Að lokum vil ég gefa ykkur yndisleg ráð:
If you can´t win ‘em, join ‘em
June 2nd, 2006 at 13:08
Ég er alveg sammála, mér finnst þetta barna þetta barna hitt bara hálf barnalegt!..heh… klént.
Einnig vil ég ekki borga skatta fyrir fólk sem þarf að fara í meðferð eða krabbameinssjúklinga sem reykja eða reyktu. Ég vil heldur ekki borga fyrir veislur og utanlandsferðir stjórnmálamanna og ég vil ekki borga fyrir tónlistarhús.
Og margt fleira…..
Bú á skattakerfið!
June 2nd, 2006 at 13:13
jahá….
Ég pældi bara ekkert í þessu!!! hhhmmm :/
en ég er sammála þessu: If you can´t win ‘em, join ‘em
(stolið frá fyrsta svarmanni/konu)
June 2nd, 2006 at 19:12
Ég ætla ekki að leggja orði í munn Ólafs stjórnmálafræðings en geri ráð fyrir að hann eigi við að einstaklingurinn sé fólk sem ekki á barn (eða börn) og sé þar af leiðandi meira að tala um ungt fólk. Ég (í þessu samhengi) er hinsvegar á því að einstaklingur sé fólk sem ekki sé með barn á framfæri hvort sem það er vegna þess að barnið er orðið fullorðið eða hefur aldrei verið til.
Ég er ekki að segja að brotið hafi verið á okkur einstaklingunum í þessari kosningabaráttu heldur er ég einungis að segja að þetta sé taktískt ekki mjög sniðugt fyrir stjórnmálaöfl að beina öllum sínum kröftum að ákveðnum hópi í stað þess að höfða til heildarinnar í meira mæli t.d. með gylliboð um lækkun á gjöldum og sköttum.
Ég er ekki á móti því að hér sé ákveðið grunn velferðarkerfi - sameiginlegir hagsmunir allra borgarbúa. Mér finnst hinsvegar ókeypis leikskóli, 50 þúsund króna frístundakort og þar fram eftir götunum vera komið út fyrir það að vera velferðarkerfi, ætti frekar að kalla það lúxuskerfi.
Margir hafa bent á (t.d. Vilhjálmur Þoddn og Dagbjört) að mikið skynsamlegra sé að hafa næg leikskólapláss handa öllum heldur en að hafa þá gjaldfrjálsa.
June 2nd, 2006 at 23:25
Ég er alveg sammála ykkur með þetta svokallaða “lúxuskerfi”, það að láta sér detta í hug að lofa gjaldfrjálsum leikskólum og 50.000.- eða hvað það var frístundakort eins og staða mála er í dag, er merki um hversu langt stjórnmálamenn ganga til að fá atkvæði.
Já já, þeir tala út um rassgatið á sér ef þurfa þykir og gera ráð fyrir að almúgi þessarar borgar séu fæðinghálfvitar með meiru.
Ég leyfi mér samt, eftir þessar kosningar, að efast um andlegt heilbrigði borgarbúa þar sem margir hverjir eru farnir að kalla einstaklinga “minnihlutahópa”, auk þess sem að þeir virðast í miklum mæli hafa keypt þetta lífstílskjaftæði - annars væri Björn Ingi ekki inni núna :S OG sjálfstæðisflokkurinn væri ekki í meirihluta! Hje hje
Og Dr. Ólafur, þessi mikli fræðingur að því er virðist, hvaða mikilvægu málefni einstaklinga eru það sem hann telur að hafi gleymst? Mér dettur einhvern veginn ekkert aðkallandi í hug. Annað en það að honum finnist “einstaklingar” borga of mikið í skatt. Sem er algerlega út í hött. Ég prumpa á þennan Ólaf.
Jæja, sæl að sinni