Sun 18 Jun 2006

Dr. Gunni ákvað að selja alla sína geisladiska um daginn (og er ennþá að). Við gátum að sjálfsögðu ekki á okkur setið og keyptum þónokkra góða diska hjá honum. Hann heldur því fram að betra sé að hlusta á tónlist á mp3 formi og hann sé nær hættur að hlusta á geisladiska. Kannski er þetta snjallt hjá honum. Eitt er þó víst að hann á eftir að raka inn pening á þessu enda á hann stórt og mikið safn. Saknaði reyndar Bob Dylan og gömlu Bubba diskanna úr safninu.
Fengum nokkra diska sem voru skrifaðir eða demo í kaupbæti og einn þeirra var diskur hennar Silvíu Nótt. Mjög skondin lög þar á ferð.
Keyptum annars eftirfarandi diska:
Íslenskt
Búdrýgindi - Juxtapos
HAM - Lengi lifi
Jan Mayen - Home of the free indeed
Kimono - Arctic death ship
Múm - Summer make good
Spilverk þjóðanna - Ísland
Strigaskór #42 - Blót
Sugarcubes - The Great Crossover Potential
Björk - Gling gló
Ég - Plata ársins
Sálin hans Jóns míns - Þessi þungu högg
Erlent
Beatles - Anthology 3 (2 cds)
Beatles - Anthology 2 (2 cds)
Beatles - Abbey Road
Beatles Sgt. Pepper's Lonely Hearts Club band
June 19th, 2006 at 21:57
Góð!
En vitið þið hvað! Ég ætlaði að leigja spólu um daginn en það var ekki hægt :O Þeir eru hættir að setja nýjar bíómyndir í spóluformi, þetta fer allt fram á dvd. Þannig að ég neyddist til að horfa á Little Trip to Heaven í tölvunni minni! Var ekkert allt of sátt, sko.
July 18th, 2008 at 8:02
Will you please sell or trade Strigaskor - Blot?
Waiting for your kind reply.
Bye from Rome
Roberto