Thu 29 Jun 2006
Má ég kynna þessa myndarlegu ungu höfuðkúpu.

Svona lít ég út undir lögum af húð, vef, vöðvum, taugum og blóði. Einhverntíman mun ég líta svona út í alvöru þegar maðkar og ormar eru búnir að japla allt utan af andlitinu á mér.
Ég fór í tölvusneiðmyndatöku í síðustu viku og þetta eru myndir úr henni. Eins og sést á myndunum þá er ég ekki fullkomlega eðlilegur því annað kinnbeinið er afmyndað. Ég er með mjög sjaldgæfan góðkynja æxlisvöxt í öðru kinnbeininu (Fibrous Dysplasia) sem veldur því að beinið stækkar vegna bandvefsvaxtar í mergholi þess. Þetta hef ég vitað í tæp tuttugu ár og fór meira að segja í uppskurð vegna þess þegar ég var ellefu ára þar sem kinnbeinið var raspað niður. Sá uppskurður misheppnaðist því beinið óx aftur í sömu stærð og áður. Það hefur hinsvegar haldið sér á mottunni síðan þannig að læknirinn mælir ekki með því að fara eiga eitthvað við þetta. Ég finn ekkert fyrir þessu, hvorki verkir né annað, en útlitslega þá veldur það því að ég er ekki alveg samhverfur í andlitinu þar sem önnur kinnin er jú aðeins stærri.
Hér er svo allt sem þig hefur alltaf langað til að vita um Fibrous Dysplasiu. Úúúú spennandi.
June 30th, 2006 at 10:38
En hvað þú ert nú góður og myndarlegur svona inn við beinið..hohoho…
Hey, einhver varð að segja það fyrst!
June 30th, 2006 at 10:51
Ú, athyglisvert
June 30th, 2006 at 13:31
Vildi að mér hefði dottið þetta í hug Hulda, hefði verið fínn inngangspunktur í færslunni eða bara fyrirsögn.
July 4th, 2006 at 19:37
Áhugavert. Ég hef aldrei pælt í því að þessi ofvöxtur ætti sér eitthvert nafn. Alltaf verður maður gáfaðri he he.
July 5th, 2006 at 10:08
Vá!
Þetta er rosalega flott. Er ekki frá því að sjá glott á þér þarna haha
July 5th, 2006 at 10:34
Já það er magnað hvað nútímatækni getur fært okkur - og hvað glottið er þrautseigt.
Svo er líka skemmtilegt að segja glott nokkrum sinnum í röð því þetta er skrýtið og skemmtilegt orð.