July 2006
Færslur eftir mánuðum
Sat 29 Jul 2006
Höfundur: Dagbjört
Fært undir:
Matar Æði[3] athugasemdir
Fyrir þá sem kunna vel að meta indverskan mat og grill þá erum við með mjög góða uppskrift sem við prófuðum um daginn. Við mælum með þessu enda sjúklega gott.

Grillaður indverskur kjúklingur með raita agúrkusósu og naan brauði.
Agúrku raita
Innihald:
- 1/4 agúrka
- Salt
- 150 ml hrein jógúrt
- 1/4 teskeið chilli krydd
Aðferð:
Skrælið gúrkuna og skafið fræin úr með teskeið. Rífið gúrkuna í rifjárni, setjið í sigti, stráið salti yfir og látið standa í 10 mínútur. Skolið síðan saltið burt og kreistið allan vökva úr.
Blandið þessu saman við jógúrtið og hrærið chilli kryddinu saman við. Kælið.
NAAN brauð (10 stk)
Innihald:
- 500 gr hvítt hveiti
- 310 ml mjólk
- 2 teskeiðar (7gr) þurrger
- 2 teskeiðar Nigella fræ (svört Kúmin fræ)
- 1/2 teskeið bökunnarduft (baking powder)
- 1/2 teskeið salt
- 1 egg, hrært
- 2 matskeiðar olívuolía
- 185 ml hrein jógúrt
Aðferð:
Sigtið hveitið í stóra skál og búið til holu í miðju þess. Hitið mjólkina á lágum hita þar til hún er líkamsvolg.
Bætið þurrgeri, bökunnardufti og salti við hveitið. Í annari skál er eggi, olíu og jógúrti hrært saman. Blandið þessu saman við hveitið ásamt 250 ml af volgu mjólkinni og hrærið saman í mjúkt deig. Ef degið er þurrt bætið við restina af mjólkinni. Hnoðið í fimm mínútur þar til degið er mjúkt og teygjanlegt. Setjið í olíuborna skál og látið standa á hlýjum stað þar til það hefur tvöfaldast að stærð. Þetta tekur 2–3 klukkustundir.
Að því loknu er deigið hnoðað lítillega og skorið niður í 10 jafn stóra hluta. Þeir eru síðan flattir út og teygðir með fingurgómunum í hið hefðbundna dropalaga Naan–form.
Þeim er síðan skellt á heitt grillið í nokkrar mínútur þar til þeir taka lit en þá er þeim snúið við. Best er að geyma þá á diski undir viskustykki til að halda þeim heitum og mjúkum.
Indverskur grillaður kjúklingur
Innihald:
- 4 kjúklingabringur
- 2 matskeiðar karrí mauk (rautt Curry paste í krukku)
- 1 matskeið olífuolía
- 1 matskeið púðursykur
- 1 teskeið malað engifer (ground ginger)
- 1/2 teskeið malað kúmin (ground cumin)
Aðferð:
Fyrst eru kjúklingabringurnar settar milli tveggja blaða af bökunarpappír. Þær eru síðan barðar með flötu hlið kjöthamars þangað til þær eru útflattar (eða rúllaðar með kökukefli).
Blandið karrímaukinu, olíunni, sykrinum, engiferinu og kúmininu í litla skál. Drefið blöndunni á báðar hliðar kjúklingabringanna og látið síðan marinerast í nokkra stund (helst 1–3 klst).
Grillið kjúklinginn þangað til hann er tilbúinn og berið fram með heitu Naan brauði og agúrkusósunni.
Fri 28 Jul 2006
Nú er bóhemlífinu lokið og ég náði bara að mála eina mynd á þessum fimm dögum. Hún heitir Sheath og sést hér að neðan.

Ég safnaði samt fullt af spennandi mynefni í fleiri Ostranenie verk og er nú kominn með nægilega mikið efni í stóra innsetningu þar á bæ ásamt nokkrum myndverkum. Ég ætla samt að halda áfram að mála myndir í Judicature myndaflokknum á næstum vikum.
Wed 26 Jul 2006

Tók mér frí frá dagvinnunni á Hvíta húsinu í þessari viku.
Ekki var þetta frí tekið til þess að lyfta tám upp til himins heldur til þess að ganga í þjónustu hennar hátignar - listagyðjunnar. Ég er að mála nokkrar myndir úr Judicature myndaflokknum mínum, ljósmynda ljót verksmiðjuhús fyrir samsetningar og taka upp á hreyfimyndavél efni til þess að búa til fleirri Ostranenie verk. Semsagt algert bóhemlíf, nema að ég vakna snemma, geng ekki með alpahúfu og drekk ekki rauðvín með bagettinu mínu í hádeginu. En þrátt fyrir þessa vankanta er þetta alveg frábært líf, væri alveg til í að hafa þetta sem dagvinnu.
Sat 15 Jul 2006
Höfundur: Dagbjört
Fært undir:
Hundalíf ,
Skemmtilegt1 athugasemd

Jæja þá er PON-síðan okkar tilbúin. Þar er meðal annars að finna upplýsingar um tegundina og Kolku, myndir, fréttir og fleira.
Vefslóðin er www.kjaftakind.net/pon eða pon.kjaftakind.net
Sat 15 Jul 2006
Höfundur: bjadddni
Fært undir:
SkemmtilegtEngar athugasemdir

Það var frétt í sjónvarpsfréttatíma RÚV í kvöld um að „dularfullt“ hvítt efni hafi fundist við fornleifauppgröft á Þingvöllum.
Hvort voru víkingarnir að sjúga kók í nös eða troða dularfullu hvítu efni í umslög til að senda óvinum sínum með pósti?
Fri 14 Jul 2006
Höfundur: bjadddni
Fært undir:
Almennt ,
Skemmtilegt[2] athugasemdir
Hannes Hólmsteinn skrifar skemmtilegt háð um forseta okkar Ólaf Ragnar í Fréttablaðið. Skoðaðu greinina hérna.
Vefurinn Hugsandi.is er með áhugaverðar greinar á hverjum fimmtudegi í sumar. Í gær var viðfangsefnið fótbolti og trúarbrögð.
Sun 9 Jul 2006
Erum búin að vera að standa í stórræðum undanfarið að finna hvolp af kyni PONverja frá ræktanda sem við treystum. Nú er svo komið að við höfum eignast litla PON-stelpu frá Finnlandi. Við erum alveg í skýjunum.
Þetta er mjög gott got, Taija ræktandinn sem við ætluðum upphaflega að fá hvolp frá er eigandi pabbans og Ana Tikkanen er eigandi mömmunar. Gerðar eru miklar væntingar til hvolpanna og er mamman meðal annars alþjóðlegur meistari. Við vorum mjög heppin því þetta var síðasti hvolpurinn úr gotinu. Hún fæddist 5. júní síðastliðinn og ef allt gengur eftir ættum við að fá hana í byrjun desember. Hún þarf að vera 5 mánaða áður en hún fær að komast til Íslands og þarf svo að vera í mánuð í einangrun. Sem sagt fyrsti PON hundur Íslands er á leiðinni! Nú ættu Gunnar og Friðrik að geta andað léttar
Við ætlum svo að útbúa heimasíðu með myndum og upplýsingum um hana, látum vita þegar hún verður tilbúin. Erum nú þegar búin að ákveða nafnið á hana sem er Kolka. Erum búin að skoða fullt af nöfnum og þetta varð fyrir valinu, fallegt og sterkt og nafn. Gúgluðum nafnið og komust að því að Kolka er skagi í Lettlandi sem er mitt á milli Póllands og Finnlands. Pabbi Kolku er einmitt innfluttur frá Póllandi og mamma hennar er finnsk.

Kolka er í miðjunni

Mæðgurnar að haldast í hendur


Kolka aðeins 4 vikna - á örugglega eftir að vera stór 6 mánaða þegar við fáum hana.
Wed 5 Jul 2006
Höfundur: Dagbjört
Fært undir:
Útlönd ,
Myndir1 athugasemd
Þegar við fórum til London í vor gistum við á Selfridge hótelinu sem er í sömu byggingu og Selfridge búðin. Gluggaútstillingarnar voru ákaflega skemmtilegar enda voru ferðamenn í hópum fyrir framan gluggana að taka myndir. Við gátum að sjálfsögðu ekki stillt okkur heldur og tókum meðal annars þessar myndir.



Tue 4 Jul 2006
Höfundur: bjadddni
Fært undir:
Kvart ,
Vinnan[7] athugasemdir

Um jólin árið 1999 fékk ég mig fullsaddan af kjötáti og ákvað að draga kjötætuna í mér til hlés. Síðan eru liðin sex og hálft ár og hefur mig ekki enn langað í kjötbita.
Fyrr en núna.
Þessi löngun til að rífa í mig hold kom aftur þegar ég sá þessa frábæru auglýsingar frá norðlenska kjötvinnslufyrirtækinu Kjarnafæði sem bæði eru í dagblöðum og sjónvarpi þessa dagana og sést hér að ofan. Er það furða þegar við höfum svona seiðandi kjöt?
Að allri kaldhæðni slepptri þá er ég mjög hissa, miðað við þá vakningu sem hefur orðið í jafnréttismálum á undanförnum árum, að svona auglýsingar birtist ennþá. Myndlíkingin er sérlega óheppileg; konur eru neysluvara, fallegt og seiðandi kjöt sem þú verslar þér eftir þínum hentugleik. Fáðu þér kjöt, fáðu þér fyrsta flokks mellu.
Þegar ég og Dagbjört vorum að ræða þetta í gær minnti hún mig á auglýsingu sem Hvíta húsið gerði fyrir Stígamót fyrir nokkrum árum og er í raun sama auglýsingin með öfugum formerkjum.
Í einfeldni minni bjóst ég við að víðsvegar um veraldarvefinn væri að finna öskureitt fólk að lýsa hneykslan sinni á þessum auglýsingum og með smá Gúgli komst ég að því að svo var ekki. Fólki virðist vera nokkuð sama um þetta að undanskildri henni og henni.
Ég hef sterkan grun um að þetta hafi verið unnið á vinnustað þar sem aðeins vinna ungir karlmenn.
Mon 3 Jul 2006
Höfundur: bjadddni
Fært undir:
Almennt[3] athugasemdir
Frétt af mbl.is
Ég spyr, af hverju var styttan á Íslandi úr áli en styttan í Englandi úr bronsi?