Erum búin að vera að standa í stórræðum undanfarið að finna hvolp af kyni PONverja frá ræktanda sem við treystum. Nú er svo komið að við höfum eignast litla PON-stelpu frá Finnlandi. Við erum alveg í skýjunum.

Þetta er mjög gott got, Taija ræktandinn sem við ætluðum upphaflega að fá hvolp frá er eigandi pabbans og Ana Tikkanen er eigandi mömmunar. Gerðar eru miklar væntingar til hvolpanna og er mamman meðal annars alþjóðlegur meistari. Við vorum mjög heppin því þetta var síðasti hvolpurinn úr gotinu. Hún fæddist 5. júní síðastliðinn og ef allt gengur eftir ættum við að fá hana í byrjun desember. Hún þarf að vera 5 mánaða áður en hún fær að komast til Íslands og þarf svo að vera í mánuð í einangrun. Sem sagt fyrsti PON hundur Íslands er á leiðinni! Nú ættu Gunnar og Friðrik að geta andað léttar ;)

Við ætlum svo að útbúa heimasíðu með myndum og upplýsingum um hana, látum vita þegar hún verður tilbúin. Erum nú þegar búin að ákveða nafnið á hana sem er Kolka. Erum búin að skoða fullt af nöfnum og þetta varð fyrir valinu, fallegt og sterkt og nafn. Gúgluðum nafnið og komust að því að Kolka er skagi í Lettlandi sem er mitt á milli Póllands og Finnlands. Pabbi Kolku er einmitt innfluttur frá Póllandi og mamma hennar er finnsk.

Kolka

Kolka er í miðjunni

Kolka og mamma

Mæðgurnar að haldast í hendur

Kolka aðeins 4 vikna - á örugglega eftir að vera stór 6 mánaða þegar við fáum hana.