Fyrir þá sem kunna vel að meta indverskan mat og grill þá erum við með mjög góða uppskrift sem við prófuðum um daginn. Við mælum með þessu enda sjúklega gott.

Indverskt grill

Grillaður indverskur kjúklingur með raita agúrkusósu og naan brauði.

Agúrku raita

Innihald:

  • 1/4 agúrka
  • Salt
  • 150 ml hrein jógúrt
  • 1/4 teskeið chilli krydd

Aðferð: Skrælið gúrkuna og skafið fræin úr með teskeið. Rífið gúrkuna í rifjárni, setjið í sigti, stráið salti yfir og látið standa í 10 mínútur. Skolið síðan saltið burt og kreistið allan vökva úr.

Blandið þessu saman við jógúrtið og hrærið chilli kryddinu saman við. Kælið.


NAAN brauð (10 stk)

Innihald:

  • 500 gr hvítt hveiti
  • 310 ml mjólk
  • 2 teskeiðar (7gr) þurrger
  • 2 teskeiðar Nigella fræ (svört Kúmin fræ)
  • 1/2 teskeið bökunnarduft (baking powder)
  • 1/2 teskeið salt
  • 1 egg, hrært
  • 2 matskeiðar olívuolía
  • 185 ml hrein jógúrt

Aðferð: Sigtið hveitið í stóra skál og búið til holu í miðju þess. Hitið mjólkina á lágum hita þar til hún er líkamsvolg.

Bætið þurrgeri, bökunnardufti og salti við hveitið. Í annari skál er eggi, olíu og jógúrti hrært saman. Blandið þessu saman við hveitið ásamt 250 ml af volgu mjólkinni og hrærið saman í mjúkt deig. Ef degið er þurrt bætið við restina af mjólkinni. Hnoðið í fimm mínútur þar til degið er mjúkt og teygjanlegt. Setjið í olíuborna skál og látið standa á hlýjum stað þar til það hefur tvöfaldast að stærð. Þetta tekur 2–3 klukkustundir. Að því loknu er deigið hnoðað lítillega og skorið niður í 10 jafn stóra hluta. Þeir eru síðan flattir út og teygðir með fingurgómunum í hið hefðbundna dropalaga Naan–form.

Þeim er síðan skellt á heitt grillið í nokkrar mínútur þar til þeir taka lit en þá er þeim snúið við. Best er að geyma þá á diski undir viskustykki til að halda þeim heitum og mjúkum.


Indverskur grillaður kjúklingur

Innihald:

  • 4 kjúklingabringur
  • 2 matskeiðar karrí mauk (rautt Curry paste í krukku)
  • 1 matskeið olífuolía
  • 1 matskeið púðursykur
  • 1 teskeið malað engifer (ground ginger)
  • 1/2 teskeið malað kúmin (ground cumin)

Aðferð: Fyrst eru kjúklingabringurnar settar milli tveggja blaða af bökunarpappír. Þær eru síðan barðar með flötu hlið kjöthamars þangað til þær eru útflattar (eða rúllaðar með kökukefli).

Blandið karrímaukinu, olíunni, sykrinum, engiferinu og kúmininu í litla skál. Drefið blöndunni á báðar hliðar kjúklingabringanna og látið síðan marinerast í nokkra stund (helst 1–3 klst).

Grillið kjúklinginn þangað til hann er tilbúinn og berið fram með heitu Naan brauði og agúrkusósunni.