Wed 16 Aug 2006
Klambratúnið er alger snilld.

Seinnipart sumarsins höfum við gert töluvert af því að fara þangað í hádeginu og snæða nesti, oftast nær hina sívinsælu Baguette með Brie-osti, tómötum og ferskum basil. Sehr gut!
Það er hálfgerð synd að á sólríkum dögum erum við ein af örfáum sem nýta sér þetta frábæra svæði, mest hundaeigendur leika við hvuttana sína og fólk sem er að stytta sér leið í gegnum garðinn.
Og núna þegar búið er að leyfa hundahald á svæðinu og ætti það að vera hvatning fyrir okkur til að nýta þetta svæði enn meira þegar Kolka mætir á svæðið.
