Laugarnestangi

Fengum okkur kvöldgöngu niður á Laugarnestanga og settumst niður við fjöruborðið skammt frá skrýtnu (en skemmtilegu) heimili hans Hrafns Gunnlaugssonar. Ótrúlegt hverstu stutt þarf að fara til þess að komast frá borginni og út í náttúruna. Þarna er hægt að skipta út umferðarnið fyrir fjölbreyttan fuglasöng, rafmagnsljósum fyrir ljósaskiptin í sléttum sjónum og almennt öngþveiti borgarlífsins fyrir innri ró.

Laugarnestangi

Mælum með Laugarnestanganum!