Tíminn líður nákvæmlega ekki neitt þegar verið er að bíða eftir einhverju skemmtilegu.

Kolka er að verða þriggja mánaða gömul í næstu viku og enn eru þrír mánuðir eftir í biðinni. Þetta er eins og þegar maður var lítill að bíða eftir jólunum hálft árið og tíminn hreyfðist ekki neitt.

Við erum nú samt svo heppin með ræktanda því hún er einstaklega dugleg að senda okkur myndir og myndskeið. Fáum yfirleitt myndir tvisvar í viku og myndskeið einu sinni í viku. Myndskeiðin hjálpa okkur í gegnum þessa erfiðu tíma (sniff sniff) og hér er það nýjasta.



Þarna eru Kolka (næstum því alveg hvít hægra megin og með lengsta skottið), Bono og Helga að leika sér. Á myndskeiðinu sést líka Mirva sem er vinkona Önu (sem líklega er bakvið myndavélina). Takið eftir að hún segir „Ei purra“ við hvolpana en það gerði Dagbjörtu mjög forvitna og á Wikipedia fann hún að þetta þýðir „ekki bíta“. Veraldarvefurinn er yndisleg uppspretta nytsamlegs fróðleiks.

Fullt af myndum og upplýsingum um Kolku á vefsíðunni hennar Kolku.