Á sunnudagskvöldið var mögnuð (kemur Magna ekkert við) heimildarmynd sýnd á Ríkissjónvarpinu.

Þessi heimildarmynd var um eina ljósmynd sem tekin var af AP fréttaljósmyndaranum Richard Drew þegar árásin á Tvíburaturnana var gerð.

Falling ma

Það sem er svo ótrúlegt við þessa mynd er að hún var sett ofan í skúffu í kjölfar fréttaflutnings af atburðunum hræðilegu og í staðinn birtu blöðin hetjulegar myndir af björgunarmönnum sem sýndu að þjóðarandi bandaríkjanna væri ekki sigraður. Þar sem myndin var birt vakti hún mikla reiði almennings. Ég var að sjá þessa mynd í fyrsta skiptið núna í þessum þætti þrátt fyrir að hún sé ein ótrúlegasta myndin frá þessum atburðum.

Það sem mér finnst svo sterkt við þessa mynd er að hún er fagurfræðilega mjög falleg og svo spyr maður sig hvort þessi aumingjans maður hafi hrapað þegar hann var að teygja sig lengra út eftir súrefni? Eða kaus hann kannski þennan dauðdaga fram yfir hinn?

Það er erfitt að setja sig í þessi spor.

Af hverju ætli það séu ekki fallhlífar í svona stórum byggingum, reipisstigar innbyggðir í gluggkörunum (nokkrir á hverri hæð) öryggisnet út frá neðstu hæðunum sem tekur fall þeirra sem niður falla eða eitthvað sem tryggir öryggi fólks í svona aðstæðum?