October 2006


dod qoq pop með bob er kominn í verslanir. Ferskasta plata allra tíma frá frumlegustu rokkhljómsveitinni á Íslandi. Hér er hægt að hlusta á lagið Less then three sem er gott. Svo eru þeir með vefsíðu sem á www.dodbobqoqpop.com dod qoq pop með bob

Þeim tekst næstum því að slá út Einstein on the Beach með Philip Glass yfir mest spilaða tónlist í iTunes hjá mér - en bara næstum því.

Ég fékk skemmtilegan póst frá Japan um daginn frá einhverjum aðila sem var að skoða PON síðuna okkar. Það kom hinsvegar upp smá vandamál við lestur þessa póst því það var erfitt að skilja hann þrátt fyrir að hann hafi verið á ensku. Hvort er manneskjan að biðja um PON hund eða bjóða okkur PON hund til sölu?

Hér er pósturinn í heild sinni (íslenskar þýðingar velkomnar. Ég tók út nafn og vefsíðu svo ekki sé hægt að sjá að ég sé að gera grín að þessum einstaklingi):

"How do you do I am doing bleeding of PON in Japan. It is called xxx. I would like you to surely yield the wonderful PON there, and it was mailed. My homepage is http://www.xxx.com/. Can a little dog be yielded and obtained? In order to carry out bleeding of the good PON, please give me cooperation by all means. This mail is mailing using translation of a personal computer. I'm sorry if it translates into impolite contents. xxx"

Svo fór ég að skoða síðuna og sá að þetta var PON hvolpur sem var að skrifa okkur póst - sem útskýrir ýmislegt.

PON að skrifa póst

Hann þarf að æfa enskuna áður en hann skrifar fleiri pósta.

myndir

Sýningin er þá komin upp. Allir að mæta. Ég og Dagbjört erum á staðnum mörg kvöld vikunnar svo ef fólk þyrstir í list og hefur lyst á drykk þá er um að gera að hafa samband við okkur og eyða með okkur kvöldstund á Næsta bar.

Svona nú ekki vera feimin hver sem þú ert - farsímanúmerið hjá mér er 822 3609.

Hvalir

Viðeigandi ræma frá Nicholas Gurewitch í ljósi nýjustu frétta af tilgangslausum hvalveiðum okkar.

Undir meðvitund

„Undir meðvitund“ opnar á laugardaginn á Næsta bar.

Ég verð ekki með opnunarteiti í þetta skiptið þar sem ég verð fram á síðustu stundu að klára öll verkin og hef því ekki tíma til að skipuleggja slíkan fagnað. En ég verð á staðnum mestalla helgina (staðurinn er opinn frá 17.00 og fram á nótt) og ef einhverjir hafa áhuga á þá er um að gera að kíkja.

Allir mjög velkomnir.

Sígild umslög

Fann þetta skemmtilega myndskeið á Drawn þar sem sígildum plötuumslögum er gefið líf. Mjög skemmtilegt.

Ég elska skvass, hef aldrei verið týpan að hlaupa á hlaupabretti á sama staðnum í tíma og ótíma. Miklu skemmtilegra að hlaupa eins og brjálæðingur eftir bolta og reyna að klekkja á andtæðingnum enda líður tíminn ótrúlega fljótt þannig. Ég og Dóra vorum duglegar að stunda þessu skemmtilegu íþrótt áður en ég og Bjarni fluttumst búferlum til Englands.

Veggtennis

Nú nokkrum árum seinna er ég byrjuð í skvassi á ný með henni Huldu og erum við bara að verða nokkuð góðar í þessu. Þetta tekur vel á enda vorum við varla að hafa fyrsta tímann af og másuðum og blésum eins og úlfurinn vondi. En nú er allt annað að sjá okkur og við spilum leikinn eins og hinir mestu og bestu atvinnuleikmenn… tja ég segi það nú kannski ekki alveg en þetta er allt að koma hjá okkur. Erum merira að segja búnar að fjárfesta í góðum spöðum og kúl gleraugum svo við lúkkum vel ;) Við erum jafnvel það duglegar að lyfta í tækjasalnum fyrir skvassið. Gufan í lokin setur svo punktinn yfir i-ið.

Fyrir þá sem hafa áhuga á skvassi þá eru ágætar leiðbeingar að finna hér í formi myndskeiða og texta en þar er farið yfir öll helstu atriðin sem hafa þarf í huga.