Kolka á flugvellinum

Jæja, hér er mynd af Kolku á flugvellinum í Helsinki á leiðinni í ævilangt frí til Íslands.

Hún er núna á Einangrunarstöðina í Höfnum en það gekk ekki þrautalaust fyrir sig að komast þangað - hún kom nefnilega ekki með fluginu í gærkvöldi frá Köben eins og áætlanir gerðu ráð fyrir.

Við töluðum við Einangrunarstöðina í morgun og þar var okkur sagt að hún væri komin og allt í fína. Við fengum svo hringingu frá þeim aftur seinnipartinn þar sem okkur var tjáð að það hafði orðið einhver misskilningur og þetta var annar hundur sem hún var að tala um við okkur í morgun. Enginn hafði hinsvegar hugmynd um hana Kolku okkar, hvar hún væri eða hvort og hvenær hún kæmi yfirhöfuð til Íslands. Það kom nett fát á okkur eins og gefur að skilja en við fengum svo fljótlega fréttir af því að hún kæmi með vélinni seinnipartinn.

Greyið litla var búið að dúsa meira og minna í þessu búri frá hádegi í gær þangað til seinnipartinn í dag. Við erum að reyna að komast að því hvort hún hafi ekki fengið að komast út úr búrinu í Köben til að hreyfa sig eitthvað og af hverju hún kom ekki með vélinni sem hún átti að koma með.