Sagði upp starfi mínu á Hvíta húsinu í gær og í dag er ég því atvinnulaus. Hamingjusamir tímar framundan.
Er þó að vonast eftir góðri framkvæmdastjórastöðu á næstu dögum með sér skrifstofu, útsýni og sveigjanlegum vinnutíma.
Tue 19 Dec 2006

Fri 15 Dec 2006
Sat 9 Dec 2006
Við vorum að setja inn myndir á Sjálfhverfu myndakindina frá því í vor og sumar. Fleiri myndir eiga eftir að bætast við fljótlega meðal annars af Kolkuling.
Fri 8 Dec 2006
Eins og glöggir lesendur hafa tekið eftir þá var myndagáta síðustu daga niðurtalning niður í daginn í dag en það er einmitt dagurinn sem við náðum í Kolku okkar í einangrunarstöðina. Sóttum hana í Hafnir um hádegi og fórum beint í góðan göngutúr um Laugardalinn til þess að leyfa henni að losa um alla þessa orku sem safnast hefur saman í fjórar vikur áður en við kynntum hana fyrir nýja heimilinu hennar.

Hún er algerlega draumahundurinn, í mjög góðu andlegu jafnvægi, róleg og yfirveguð en alltaf til í að leika.
Wed 6 Dec 2006

Wed 6 Dec 2006

Tue 5 Dec 2006

Mon 4 Dec 2006

Sun 3 Dec 2006

Sat 2 Dec 2006