January 2007


Hundahald hefur tekið allan bloggtíma frá okkur í bili. En hér eru nokkur blogg í einu með því helsta.

Dagbjört lenti í þeirri óskemmtilegu reynslu að það var keyrt á hana þegar hún var á leið í skvass í gærkvöldi. Hún var í 100% rétti því það var keyrt aftan á hana þegar hún var að bíða við að komast inn á hringtorg. Hulda var með henni og fengu þær dágott högg sem leiddi af sér verki í hálsi og höfði. Bíllinn er með brotið afturljós og bretti og töluvert beyglaður og erfitt er að opna bílstjórahurðina. Ég var með gítarmagnara í skottinu sem ég veit ekki enn hvort hafi hlotið einhvern skaða af.

Ef maður er tryggður þá fær maður það bætt - ekki satt?

Rekstur Ekkert ehf gengur vel. Vinn um það bil helmingi minna til þess að fá sömu laun og í starfinu hjá Hvíta húsinu sem gefur mér meiri tíma til annara afreka og meiri tíma með Dagbjörtu og Kolku. Er búinn að vera mjög heppinn með verkefni, hef fengið nóg að gera enn sem komið er. Er svo að kenna upp í Listaháskóla 4 morgna í viku námskeið sem ég setti saman í fyrra og nefnist Samband hljóðs og myndar - en það er sérlegt áhugamál mitt.

Vefur Framtíðarlandsins

Hef verið að vinna heilmikið fyrir Framtíðarlandið, gerði m.a. útlit fyrir vefsíðu félagsins sem opnaði á núna á mánudaginn. Hvet alla sem hafa áhuga á að starfa fyrir félagið að skrá sig og bjóða sig fram - það eru spennadi hópar að hefja störf innan félagsins. Ég er í kynningarhópnum sem hittist reglulega og veltir upp hugmyndum til þess að kynna félagið og málefni þess. Svo er ég að vinna að fleiri verkefnum eins og tónlistarmyndband fyrir lag úr Ófögru veröld sem sýnt er í Borgarleikhúsinu. Fórum og sáum verkið um daginn og það er vel hægt að mæla með því. Benedikt Erlingsson leikstýrir en hann er einn af mínum uppáhalds leikurum og núna leikstjórum.

Kolka er núna búinn að vera hjá okkur í einn og hálfan mánuð og erum við strax farinn að huga að næsta innflutningi sem að sjálfsögðu verður annar PON. Ef allt fer eins og áætlað þá ættum við að fá annan hund eftir 1 - 1,5 ár. Það þarf að vanda til verks.

Byrjuðum með Kolku á hundanámskeiði í síðustu viku hjá Ástu Dóru í Gallerí Voff. Það er mjög gaman og hún hefur gott af þessu, hittir meðal annars aðra hunda og lærir að haga sér vel. Hún er þó ekkert voðalega óþæg. Bara stundum þegar við erum úti að ganga, vill vera á undan og þefa af öllu. Henni finnst líka nauðsynlegt að vara mann við öllu fólki sem nálgast með því að gelta smá.

Kolka á Rauðavatni

Við erum mjög fegin að það skuli loksins vera kominn vetur með tilheyrandi snjóþekju. Það gerir líf eiganda loðinna hunda með hvítan feld lífið auðveldara. Þegar rignir og mikil drulla er þurfum við að setja hana í fótabað allavega einu sinni á dag. Kolka er líka mjög ánægð með þetta, alveg elskar að hlaupa og hoppa í snjónum eins og sjá má á myndinni hérna fyrir ofan.

Gleðilegt nýtt ár

Það hefur lítið annað komist að hjá okkur síðustu vikurnar nema Kolka, sjá til þess að hún fái nægilega hreyfingu, kenna henni góða siði og allt annað sem hundahaldi fylgir. En fyrirhöfnin er svo sannarlega þess virði.

Á gamlárskvöld fengum við pabba og Friðrik bróðir í kalkún þar sem mamma var á vakt. Við vorum að elda heilan fylltan kalkún í fyrsta skiptið og heppnaðist það bara mjög vel. Kolka var róleg þrátt fyrir stríðsástand utan dyra – kippti sér lítið upp við sprengingarnar.