Mon 1 Jan 2007

Það hefur lítið annað komist að hjá okkur síðustu vikurnar nema Kolka, sjá til þess að hún fái nægilega hreyfingu, kenna henni góða siði og allt annað sem hundahaldi fylgir. En fyrirhöfnin er svo sannarlega þess virði.
Á gamlárskvöld fengum við pabba og Friðrik bróðir í kalkún þar sem mamma var á vakt. Við vorum að elda heilan fylltan kalkún í fyrsta skiptið og heppnaðist það bara mjög vel. Kolka var róleg þrátt fyrir stríðsástand utan dyra – kippti sér lítið upp við sprengingarnar.
January 2nd, 2007 at 8:51
Þið hafið sem sagt ekki verið eins heppin og við.
Þegar við vöknuðum á nýársdag hafði Bjartur fengið niðurgang í búrið sitt og niðri fyrir framan eldhúsið.
Síðan fór pabbi með hann í göngutúr og hann fékk aftur niðurgang, sem betur fer úti.
Að lokum um kvöldið…jú mikið rétt, aftur niðurgangur á sama stað og fyrst, fyrir framan eldhúsið, plús piss.
Eins gott að mamma var ekki þunn!
En þýðir skítur ekki peninga? Spurning um að kaupa lottómiða….
January 2nd, 2007 at 11:19
Hæ sæta fólk og Kolka
Gleðilegt árið og takk fyrir það gamla…
January 2nd, 2007 at 21:49
Gleðilegt ár og sjáumst sem fyrst. Halli, Harpa, og Halldóra Björg.
Bestu kveðjur til Kolku og takk fyrir kortið.
January 4th, 2007 at 12:39
Þið ættuð að taka myndina “Best in Show” ef þið hafið ekki þegar séð hana..
http://www.imdb.com/title/tt0218839/
January 4th, 2007 at 19:20
Gleðileg nýtt ár… og vá hvað Kolka er yndislega skemmtilega fallegur hundur
(tík..) til hamingju með hana og gangi ykkur æðislega vel með hana
Knúzíbúz
January 10th, 2007 at 20:09
Gleðilegt ár sömuleiðis.
Knús úr vesturbænum. Stóra sys og fjölskylda