Kolka 8 mánaða

Hvetjum alla til að mæta á alþjóðlega sýningu Hundaræktarfélags Íslands næstu helgi í Reiðhöllinni Víðidal. Kolka er að „keppa“ á sunnudaginn kl. 11.02 (áætlun gæti þó verið flýtt) í hring númer tvö hjá dómaranum Johan Juslin sem er einmitt samlandi Kolku (frá Finnlandi). Ef hún kemst í úrslit þá verða þau upp úr 15.00.

Þetta verða hennar fyrstu fjórar mínútur af frægð sem vonandi ganga vel. Við erum allavega búin að vera dugleg að æfa - höfum m.a. farið í tvisvar í viku í sýningarþjálfun undanfarnar vikur.